Sunnudagur, 12. september 2021
Svandís kaupir atkvæði homma, fórnar lýðheilsu
Ef hommar fá að gefa blóð aukast líkurnar 70-falt að saklaus Íslendingur fái eyðni eða sýfilis, sem eru kynsjúkdómar tíðir með homma. Með orðum Sveins Guðmundssonar yfirlæknis Blóðbankans:
Þetta helgast af því að MSM-hópurinn [þ.e. hommar] er sérstaklega útsettur fyrir HIV og sýfilis, það er vel þekkt um allan heim og áhætta þessa hóps hefur í mörgum löndum verið metin allt frá 60 upp í 300-föld miðað við almennt þýði.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra reynir sem sagt að kaupa sér atkvæði homma með því að fórna lýðheilsu.
Vinstri grænir stunda svona pólitík af fullkomnu miskunnarleysi. Fyrir síðustu kosningar lofuðu Vinstri grænir sértrúarsöfnuði sem trúir að kynin séu ekki tvö, heldur þrjú, fimm eð seytján, að breyta lögum um opinbera skráningu á karli og konu. Það gekk eftir. Nú er hægt að vera eitthvað annað en karlkyns eða kvenkyns. Líffræðilega er það óvart ekki hægt.
Ofan á fávitahátt á æðstu stöðum bætist mannfjandsamlegt tilræði við heilsufar Jóns og Gunnu. Hvers á þjóðin að gjalda?
![]() |
Telur drög Svandísar varhugaverð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |