Sykurpabbinn og stjórnmálin

Níu framboð eru til alþingis í kosningunum eftir tvær vikur. Sjö eru sykurpabbaframboð en tvö má kenna við Bjart í Sumarhúsum.

Sykurpabbar gefa pening í neyslu og uppihald til þeirra sem nenna ekki að dýfa hendi í kalt vatn og vilja hirða sinn hlut á þurru. Gefa í staðinn blíðu sína og atkvæði. Sykurpabbinn í stjórnmálum kemur bæði í vinstriútgáfum, sósíalistar og Samfylking, en einnig standa þeir í hægrigættinni, Viðreisn. Sumir sykruðu eru bæði til hægri og vinstri s.s. píratar.

Fái sykurpabbar framgang 25. september eykst atvinnuleysi enda óþarfi að afla tekna á borgaralaunum. Ófriður vex enda skjólstæðingar sykurpabba heimtufrekir og tortryggnir á að aðrir fái stærri sleikjó.

Tvö framboð eru í anda Bjarts í Sumarhúsum, sem heldur bjó í aumu koti en að vera upp á aðra kominn. Við eigum að velja á milli þessara tveggja Sumarhúsaframboða.


mbl.is Verulega dregur úr atvinnuleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. september 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband