Prósentuvísindi

Einhver prósenta sem fær Codvid-19 deyr. Prósentan er hærri hjá þeim sem eru óbólusettir. Einhver prósenta, eða brot úr prósenti, af þeim sem fá bólusetningu fær aukaverkanir sem í geta jafnvel endað með dauða - en þar eru líkurnar afar litlar.

Út frá þessum prósentum keppist fólk við að mynda sér skoðun á Kínaveirunni og bólusetningum við henni. Töluverður hávaði er skoðanaskiptum andstæðra hópa.

Hér er önnur prósenta til að pæla í. Í venjulegu árferði deyr prósenta sjúklinga á heilbrigðisstofnunum landsins ótímabærum dauðdaga.

Samt dettur engum í hug að best væri að leggja af heilbrigðiskerfið, enda þótt það valdi ótímabærum dauðdaga prósentubrots sjúklinga.

Lyginni líkast er hve margir tapa dómgreind í prósentuvísindum. 

Eina 100% örugga vitneskjan um lífið er að við deyjum öll áður en yfir lýkur.

 


mbl.is Hinir látnu voru erlendir ferðamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri framboð en minni áhugi

Almenningur sýnir stjórnmálum minni áhuga en pólitískum framboðum fjölgar. Hvernig er hægt að skýra þessa mótsögn?

Jú, auðveldara er en áður að efna til framboðs. Munar þar mestu um samfélagsmiðla. Sérviskuframboð geta með litlum tilkostnaði náð til fámennra kverúlantahópa sem þó eru nægilega stórir til að skila fimm prósentum og þingflokki.

Þess vegna höfum við pólitísk furðufyrirbæri eins og Pírata, Ingu og Gunnar Smára.


mbl.is Minnsta fylgishreyfing getur haft víðtæk áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. ágúst 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband