Fimmtudagur, 26. ágúst 2021
Sigmundur Davíð og tilboðið: valdeflum almenning
Sigmundur Davíð og Miðflokkurinn gera almenningi tilboð sem vert er að íhuga. Á hverju ári verði afgangi ríkissjóðs skipt í tvo hluta. Almenningur, þ.e. sérhver íslenskur ríkisborgari, fær helminginn en helmingurinn fer annað tveggja til lækkunar opinberra skulda eða í varasjóð.
Almenningur fengi með þessu fyrirkomulagi tvöfaldan ávinning. Í fyrsta lagi beingreiðslu einu sinni á ári - ef það er afgangur af ríkissjóði. Í öðru lagi stæði almenningur betur að vígi gagnvart stjórnmálamönnum, þingi og framkvæmdavaldi, Árlega gæti almenningur krafið stjórnvöld um útskýringu á hvernig gengi að reka ríkissjóð.
Stjórnmálamenn munu keppast um að þegja í hel tilboð Sigmundar Davíðs og Miðflokksins. Hvers vegna skyldi það vera?
![]() |
Vill skila afgangi úr ríkissjóði til almennings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 26. ágúst 2021
Tíminn, kynin og Katrín
Líffræðileg kyn eru tvö, kennd við karl og konu. Án tveggja kynja verður líffræðileg þróun óskiljanleg. Þróunarkenning Darwins um uppruna tegundanna er merkingarleysa ef við gefum okkur að kyn sé val einstaklingsins og félagslega skilgreint. Fyrir miðja síðustu öld var til hugmyndafræðin félagslegur Darwinismi. Allir með eitthvað á milli eyrnanna forðast þá hugmyndafræði.
Lög sem segja kyn valkvætt eru andvísindaleg og brjóta gegn heilbrigðri skynsemi. Katrín forsætis og Vinstri grænir telja sig sjálfsagt gera góðverk með lagasetningunni. Öðru nær, því miður. Ef við hættum að taka gott og gilt sem blasir við og er undirstaða skilnings okkar á lífinu og tilverunni er hætt við að fleira fari í súginn.
Við mælum aldur í dögum, vikum, mánuðum og árum, jafnvel mínútum ef því er að skipta. Ólíkt kynferði, sem er gefin stærð í náttúrunni, eru mælieiningar tímans mannlegur tilbúningur. Samt dettur engum í hug að leyfa fólki að ákveða sjálft hversu gamalt það er. 84 ára kraftlyftingakona getur með rökum sagt sér líða ekki deginum eldri en sextugt. Ætti hún að fá heimild til að breyta aldri í þjóðskrá? Vitanlega ekki.
Við þurfum fastar afmarkaðar staðreyndir í tilverunni til að heimurinn sé skiljanlegur. Fastar afmarkaðar staðreyndir eru hornsteinar. Án þeirra blasir við merkingarleysa og óreiða. Ef karl í dag getur orðið kona á morgun er heimurinn óskiljanlegur.
Líffræði verður ekki breytt með lögum. Að stjórnvöld sæmilega upplýstrar þjóðar skuli reyna það segir ókræsilega sögu um dómgreind stjórnvalda.
![]() |
Katrín svarar Sigmundi um fjölda kynja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)