Föstudagur, 20. ágúst 2021
Loftslag, kóf og barnaher
,,Ungir umhverfissinnar hafa boðað til þriggja upplýsingafunda um loftslagmál og segja að jafn róttækar aðgerðir þurfi í loftslagsmálum og heimsfaraldri COVID-19," segir á RÚV. Ennfremur
Fyrirlesarar voru sammála um að faraldurinn hefði kennt heimsbyggðinni ákafleg margt um hvernig hægt sé að bregðast við neyðarástandi líkt og loftslagsmálunum.
Allir eldri en tvævetur vita að faraldurinn kenndur við Kínaveiruna er eitt og loftslag á jörðinni er allt annað.
Aðgerðasinnar á hinn bóginn sjá sér leik á borði að hræða fólk til fylgis við glópahlýnun með þeim rökum að hvorttveggja sé neyðarástand, veira og veðurfar.
Á miðöldum sendi kaþólska kirkjan barnaher til að frelsa Jerúsalem undan múslímum. Í dag senda Sameinuðu þjóðirnar börn til að berjast gegn náttúrulegu veðurfari.
Við lifum svo sannarlega á upplýstum tímum.
![]() |
Hamfarahlýnun stærsta ógn barna og ungmenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 20. ágúst 2021
Framtíð í veirusamfélagi - skemmtun utan eftirlits
Framtíðarsýn sóttvarnarlæknis er að Kínaveiran og afbrigði hennar verði á ferðinni í samfélaginu næstu misseri og ár. Til að hamla útbreiðslu er ráðlegt að grípa til sóttvarna sem reynslan segir að virki. Veitingamenn segja nærri sér hoggið og
telja ljóst að fólk muni ekki hætta að hittast og skemmta sér sér heldur færa sig í heimahús eða annað húsnæði þar sem ekkert eftirlit er.
Skemmta sér heima utan eftirlits? Nei, það gengur ekki og er afskaplega óviðfelldin framtíðarsýn.
Vitanlega á öll skemmtun að vera undir eftirliti.
Kveðja,
Stóri bróðir.
![]() |
Lýsa yfir áhyggjum af framtíðarsýn sóttvarnalæknis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 20. ágúst 2021
Sólin, ekki CO2 skýrir hlýnun, segja 23 vísindamenn
Ný ritrýnd rannsókn 23 vísindamanna kemst að þeirri niðurstöðu að virkni sólar skýrir hlýnun jarðar frá miðri 19. öld - ekki koltvísýringur, CO2.
Rannsóknin kippir stoðunum undan nýlegri IPCC skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem segir mannlífi á jörðinni hætta búin vegna manngerðra loftslagsbreytinga.
Frá miðri 19. öld hefur meðalhitastig jarðarinnar hækkað um 1 gráðu, já eina gráðu. Ekki beinlínis hamfarahlýnun.
Ef það er sólin en ekki losun mannsins á CO2 sem skýrir hlýrra loftslag er tilgangslaust að breyta atferli manna - það er ekki maðurinn sem stýrir loftslagsbreytingum heldur náttúran. Eins og hún hefur alltaf gert.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)