Laugardagur, 14. ágúst 2021
Hver er kjörhiti jarðarinnar?
Júlímánuður var hlýjasti mánuður jarðar síðan mælingar hófust fyrir 142 árum eða 0,93 gráðum hærri en meðaltal 20. aldar sem var 15,8 gráður, segir í viðtengdri frétt.
Gott og vel. Er kjörhiti jarðarinnar þá 15,8 gráður? Eða er kjörhitinn eitthvað hærri líkt og hann var á rómverska hlýskeiðinu?? Eða lægri eins og á litlu ísöld 1300 til 1900?
Hæsta hitastig sem mælt hefur verið á jörðinni er 58 gráður en það lægsta mínus 88 gráður. Þarna á milli eru heilar 144 gráður. Fyrri mælingin var gerð í Líbýu en sú seinni á suðurskautinu. Engum dettur í hug að kjörhiti jarðar sé meðaltal hitastigs í eyðimörk og suðurpólsins.
Það er merkingarlaust að tala um meðalhita jarðarinnar þegar kjörhiti jarðar er óþekkt stærð.
![]() |
Hlýjasti júlímánuður í 142 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)