Þriðjudagur, 8. júní 2021
Ef fjölmiðlar eru fávitar, þá má ég vera fáviti
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir og Oddný Arnarsdóttir sökuðu tvo unga menn um þaulskipulagðar nauðganir í íbúð í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þær voru dæmdar fyrir meiðyrði á tveim dómsstigum.
Oddný vildi að hæstiréttur endurskoðaði niðurstöðu héraðsdóms og landsréttar. Rök Oddnýjar eru athyglisverð. Þau eru, samkvæmt meðfylgjandi frétt:
Hún segir umfjöllun fjölmiðla hafa verið óvægna [þ.e. um meint nauðgunarmál] og til þess fallna að almenningur, þar með talið hún, hefðu dregið ýmsar ályktanir og þaðan hefðu ummælin sprottið.
Á mannamáli þýðir þetta að ef fjölmiðill fer offari í umfjöllun þá er allt í lagi að koma í kjölfarið og bæta um betur.
Röksemdin fer nokkuð nærri því að segja að fólk beri ekki ábyrgð á eigin orðum.
Að Oddnýju, og væntanlega lögmanni hennar, skuli detta í hug þessi röksemdafærsla segir svolítið um samtímamenninguna. Maður ber ekki ábyrgð á eigin orðum, nei, sei, sei. En svo sannarlega hefur maður full mannréttindi til að tjá sig - bara án ábyrgðar.
Orð án ábyrgðar eru í grunninn merkingarlaus. Sá sem kennir öðrum um orð sín lýsir sig ósjálfráða. Ekki sniðug málsvörn fyrir þátttakendur í umræðu. Annað gildir um þá sem taka þátt í galdrabrennum undir yfirskini umræðu.
![]() |
Hæstiréttur tekur ekki fyrir ummæli í Hlíðamálinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 8. júní 2021
Engar Namibíufréttir á RÚV
Til skamms tíma sérhæfði RÚV sig í málefnum Namibíu, einkum þeim er tengdust samherja hagsmunahópsins á Efstaleiti, Jóhannesi Stefánssyni uppljóstrara.
Nú liggur fyrir að dómssjölin í Jóhannesarmáli og Samherja eru orðin 444. Heill fjársjóður fyrir rannsóknablaðamenn hagsmunahópsins.
En það heyrist ekki múkk frá hagsmunahópnum. Ekkert að frétta efst á leiti.
Fyrir áhugasama er slóðin á málsgögnin hér. Málsnúmerið er: HC-MD-CIV-MOT-POCA-2020/00429
Svo er hægt að lesa hápunktana á íslensku hér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)