Mánudagur, 7. júní 2021
Afglapavæðing Loga
Þegar Logi formaður Samfylkingar talaði um lögleiðingu fíkniefna sagði hann ,,afglapavæðing" en ekki ,,afglæpavæðing".
Þvoglumælgi formannsins fellur eins og flís við rass málstaðarins.
![]() |
Hrollvekjandi framtíðarsýn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 7. júní 2021
Femínisti bannaður á Twitter
Naomi Wolf er þekktur bandarískur femínisti. Reikningi hennar á Twitter var lokað, segir BBC, þó ekki vegna femínískra staðhæfinga.
Wolf, sem sagt, er sökuð um að dreifa rangfærslum um bólusetningar við Kínaveirunni.
Fyrir skemmstu mátti ekki segja á Twitter, og heldur ekki á Facebook, að uppruni veirunnar væri á rannsóknastofu í Wuhan í Kína, en ekki kjötmarkaði. Tæknirisarnir og kínversk stjórnvöld voru sammála um að tilgátan um rannsóknastofuna væri bannorð.
Nú er komið á daginn að uppruna veirunnar má að öllum líkindum rekja til rannsóknastofu. Afleiðingarnar verða heimspólitískar, segir dálkahöfundur Telegraph.
Rangfærslur Wolf um bóluefnið eru, samkvæmt BBC, að öllum líkindum einmitt það, rangfærslur. En það þóttu líka allar kenningar um að Kínaveiruna mætti rekja til rannsóknastofu. Þangað til að þær reyndust (líklega) sannar.
Tæknirisar eins og Twitter og Facebook eru ekki heppilegustu aðilarnir til að ákveða hvað er rétt og hvað rangt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)