Mánudagur, 28. júní 2021
Trumpfrétt RÚV og alvörufrétt
Trump fráfarandi forseti Bandaríkjanna hélt útifund fyrir helgi, gagnrýndi vænisjúka hershöfðingja og kynþáttahyggju í fræðibúningi. Alvöru fjölmiðlar sögðu frá fundinum, að hann væri haldinn til stuðnings þeim frambjóðendum Repúblíkanaflokksins sem Trump hefur velþóknun á. Öðrum þræði er Trump að gæla við forsetaframboð 2024, segir Telegraph sem þykir ekki útgáfa höll undir fráfarandi forseta.
Svo kemur RÚV með frétt af útifundi Trump og hljómar eins og safnaðarrit hatursmanna fráfarandi forseta. Fyrirsögnin er ,,Hamrar enn á ósannindum um kosningasvik" og hér er smjörþefur af textanum:
Við gætum þurft að vinna í þriðja sinn, sagði forsetinn, það er mögulegt. Í þessari setningu kristallast jafnframt eitt megininntak ræðuhaldanna: Áframhaldandi rangfærslur um að hann hafi í raun unnið stórsigur í forsetakosningunum í nóvember en verið snuðaður um hann með vélabrögðum.
Samkvæmt Telegraph talaði Trump í rúma klukkustund. Frétt RÚV gefur til kynna að karlinn hafi vælt í fimm mínútur um kosningasvindl. RÚV segir ekkert frá tilefni fundarins, þátttöku og pólitísku samhengi. Þingkosningar eru þar vestra á næsta ári þar sem öll þingsæti fulltrúadeildarinnar eru í húfi, rúm 400, og 34 af 100 þingsætum í öldungadeildinni.
Safnaðarútgáfa hagsmunahópsins á Efstaleiti er löngu hætt að segja fréttir. Öllu púðrinu er eytt í boðskap og útleggingu rétttrúnaðarins.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)