Eineltismenning blaðamanna

Um 35 blaðamenn hafa orðið fyrir einelti á vinnustað, samkvæmt könnun Blaðamannafélags RÚV.

Blaðamenn í vaxandi mæli stunda atlögufréttamennsku þar sem einstaklingar og fyrirtæki eru tekin fyrir með síbyljufréttum og virkni í athugasemdum á félagsmiðlum. ,,Að taka menn niður," er þetta kallað í faginu.

Þegar starfsstétt tileinkar sér harðsvíraðan afflutning málsatvika er hætt við að siðferði á vinnustað hraki. Það gæti skýrt eineltismenninguna.

Við bíðum eftir raðfréttum hagsmunahópsins á Efstaleiti um einelti í blaðamannastétt.


mbl.is Fjölmiðlafólki ógnað í starfi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trans-ekkjur og byrði karlmennskunnar

Sumir karlar kikna undir oki karlmennskunnar og gerast konur, eru þá kallaðir transkonur. Eitruð karlmennska er viðkvæðið í menningunni og það er ekki allra að glíma við þá áþján.

Karlar í hjónabandi sem kvenvæðast með skurðaðgerðum og hormónameðferð skilja eftir sig það sem kallað er trans-ekkjur. Eiginkonan, sem áður var í gagnkynhneigðu hjónabandi, er komin í lesbískt samband eftir kynskipti eiginmannsins. Ef eiginkonan segir múkk er hún óðara stimpluð transfóbísk og fær hatursrússíbanareið á félagsmiðlum. Þess vegna þegir þorri trans-ekkna.

Í Bretlandi, móðurlandi vestrænna mannréttinda, eiga konur útgönguleið ef þannig háttar að karlinn fær löngun að verða kerling. Eiginkonurnar eiga þann rétt að ógilda hjónaband áður en það verður lesbískt. Þá verða karlar á leið í kynskiptaaðgerð að fá samþykki spúsunnar. 

En nú er hætta á að þessari útgönguleið verði lokað. Krafa hinsegin-samtaka er að afnema skuli þann lagabókstaf er heimilar ógildingu hjónabands á þeim grunni að makinn skiptir um kyn. Ekki verður lengur krafist samþykkis maka fyrir vegferðinni frá einu kyni í annað, nái hinseginkrafan fram að ganga.

Telegraph fjallar um trans-ekkjurnar í Bretlandi og vandkvæði þeirra.

Valhöll og Vinstri grænir ættu kannski að kynna sér málið áður en lengra er haldið í kynrænu sjálfræði þar sem tíska og smekkur kemur á undan líffræði. Náttúran ákveður kyn. Þegar karl gefst upp á eigin kyni er það hans einkamál en ekki vandamál samfélagsins. Lög í andstöðu við náttúruna eru ekki sniðug þótt sumum þyki það hipp og kúl að Nonni geti orðið Jónína, detti honum það í hug.

(Innan sviga: hér að ofan, og í umfjöllun Telegraph, er aðeins fjallað um karla er verða kerlingar. Ekki um konur í karlleiðangri. Fæstum dettur í hug að skipta yfir í veikara kynið).


Bloggfærslur 21. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband