Þriðjudagur, 15. júní 2021
Heiðarlegur Haraldur
Það er heiðarlegt af Haraldi Benediktssyni fyrsta þingmanni sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi að segja flokksmönnum sínum fyrirfram að hann muni ekki þiggja annað en fyrsta sætið á lista flokksins.
Haraldur sýndi stórmennsku þegar hann féllst á þau sjónarmið flokksformannsins, Bjarna Ben, að konu þyrfti í ríkisstjórnina og Þórdís Reykfjörð úr kjördæmi Haraldar fékk ráðherradóm.
Þegar valið er á lista alvöru stjórnmálaflokka fer í oddvitasætið sá sem flokksmenn vilja leiðtoga flokksins í kjördæminu.
Nú vita sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi að hverju þeir ganga. Heiðarlegt af Haraldi að tilkynna það áður en prófkjör gengur í garð.
![]() |
Haraldur mun ekki þiggja annað sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 15. júní 2021
Persónuvernd lekur í RÚV
Í stríði RÚV gegn Samherja er ekkert heilagt. Moldvarpa RÚV hjá Persónuvernd færði hagsmunahópnum á Efstaleiti þær upplýsingar í gær að Samherjamaður hafi leitað til Persónuverndar vegna einkahagsmuna.
,,Samkvæmt heimildum fréttastofu," segir í frétt RÚV.
Það liggur í augum uppi að heimild RÚV getur ekki verið önnur en starfsmaður Persónuverndar.
Stofnunin þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum. Annars er Persónuvernd ekki hæf til persónuverndar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 15. júní 2021
Nató, Rússland og Kína
Nató þvingaði Rússland í fangið á Kína með ágangi á vesturlandamæri Rússa. Þar er Úkraína skýrasta dæmið. Í stað þess að friðmælast við Rússland eftir kalda stríðið tóku vesturlönd upp herskáa stefnu gagnvart Rússum.
Náið bandalag Rússlands og Kína þjónar ekki vestrænum hagsmunum. Þegar Stoltenberg Nató-stjóri segist ekki í köldu stríði við Kína er hann óbeint að viðurkenna mistök í Rússlandsstefnu vesturlanda síðustu 30 ár.
Í Bandríkjunum eru samtök, US-Russia Accord, sem vinna að betri samskiptum Rússlands og Bandaríkjanna. Í opnu bréfi, m.a. undurrituðu Jack F. Matlock, fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í Sovétríkjunum, er hvatt til vinsamlegri samskipta við Rússa.
Evrópuríki, þau sem starfa innan ESB, eru einnig að vakna til vitundar um skynsemi þess að leggja Rússagrýluna á hilluna.
Vonum seinna.
![]() |
Heimsbyggðin ekki á barmi kalds stríðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)