Engin leið að spá sumarveðri - en hlýrra eftir 75 ár

Í dag er 10. júní og gamalreyndur veðurfræðingur segir ómögulegt að spá fyrir sumarveðrinu. Það sé of mikil ,,óreiða og breyti­leiki" í veðurfarinu.

En hvernig getur fólk sagt að það verði hlýrra eftir 75 ár? Jú, ef það trúir á manngert veðurfar. Koltvísýringur,CO2, er 0,04% af andrúmsloftinu. Af öllum koltvísýringi í andrúmsloftinu ber náttúran ábyrgð á 97 prósentum en maðurinn afganginum. En við eigu að trúa því að framlag mannsins, 3% af 0,04%, skipti sköpum.

Grænland var 1,5 gráðu hlýrra á miðöldum en í dag, segir danski vísindamaðurinn Jorgen Steffenson. En það er einmitt 1,5 gráða á celcius sem ,,óttast" er að heimurinn hlýni um til næstu aldamóta. Þ.e. ef fólk hættir ekki að nota bensínsláttuvélar og fær sér orf og ljá í staðinn.

Þeir sem trúa á alheimshlýnun af mannavöldum eru með sérstaka netvarðliða til að kæfa umræðu um hina einu sönnu réttu trú.

En veðrið, sem sagt, einkennist af ,,óreiðu og breytileika". Loftslag er ekkert meira en veðurfar yfir langan tíma, 30 ár eða lengur. Og ef ekki er hægt að spá fyrir veðri næstu vikur er ekki hægt að spá fyrir hlýnun eða kólnun næstu áratugi.

Þar fyrir utan þá veit enginn kjörhita jarðarinnar. Einfaldlega vegna þess að kjörhiti jarðarinnar er ekki til. Við ættum að vara okkur á sérfræðingum er þykjast vita um eitthvað sem ekki er til.


mbl.is Engin leið að spá fyrir um sumarið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhannes uppljóstrari: Ég er leiðtoginn og kann á Namibíu

Ég er leiðtoginn í þessu verkefni og svara fyrir mínar gjörðir gagnvart eigendum. Þeir sem ekki fylgja reglunum verða teknir úr liðinu. Eigum við ekki að segja sumir fá núna gult spjald, í það minnsta áminningu.

Á þessa leið skrifar Jóhannes uppljóstrari Stefánsson í tölvupósti til Íslands 20. september 2015. Jóhannes stjórnaði Namibíu-verkefni Samherja og hefur játað á sig fjölmörg afbrot í starfi s.s. mútugjafir til namibískra ráðamanna, eins og fram kemur í Namibíuskjölunum.

En núna segir Jóhannes að hann hafi aðeins unnið samkvæmt fyrirskipunum frá Íslandi. Áður leiðtogi en núna starfsmaður á plani.

Viku seinna, 27. september 2015, skrifaði Jóhannes aftur heim og sagði að Samherjafólk á Íslandi héldi að hægt væri að stunda viðskipti í Namibíu eins og í hverju öðru Evrópulandi. Svo væri alls ekki.

En núna vill Jóhannes að við trúum þeirri sögu að hann hafi verið strengjabrúða Samherja í Namibíu og fjarstýrt frá Íslandi.

Sá sem situr á skrifstofu í Glerárgötu á Akureyri býr ekki til viðskiptasambönd í Namibíu með tölvupóstum. Menn þurfa að vera á staðnum. Rétt eins og uppljóstrarinn sagði áður en hann gekk í þjónustu hagsmunahópsins á Efstaleiti, sem vill fá sitt Jóhannesarguðspjall ómengað af öðru en Samherjahatri.


Bloggfærslur 10. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband