Mánudagur, 17. maí 2021
Guđrún var vćn og kurteis - ég trúi
Guđrún Ţórđardóttir var ,,kvenna vćnst og kurteisust," segir í Guđmundar sögu dýra. Hún átti bú eftir föđur sinn og ţótti bestur kostur jafnborinna kvenna.
Fyrst giftist Guđrún Símoni Ţorvarđarsyni, vinsćlum manni og hógvćrum. Guđrún undi sér ekki međ Símoni, ,,fór stundum frá búinu en stundum heim." Símon drukknađi í sendiferđ Guđrúnar.
Nćst giftist Guđrún Hrafni Brandssyni. Guđrún ,,hljóp úr hvílu hina fyrstu nótt er Hrafn var inn leiddur." Guđrún eignast ástmann, Hákon Ţórđarson frá Laufási.
Einn dag mćlti Guđrún til Hákonar, kvađst eigi vilja komur hans međan Hrafn vćri á lífi ,,en ger sem ţér sýnist síđan."
Hákon lagđi til Hrafns međ spjóti. Guđrún bađ Hrafn ekki vega á móti sem dó eftir ţau orđ ađ svöđusárin vćru grunn en svikin sćrđu. Ţórđur, fađir Hákonar, vildi ađ Guđrún bćtti ađ hálfu manngjöld eftir vígiđ ţar eđ hún lagđi á ráđin. Guđrún neitađi og viđ ţađ sat. Frćndur Hákons og Ţórđar bćttu Hrafn.
Síđan fékk Hákon Guđrúnar og var viđ hana harđur og kvađ sér eigi skyldu ţađ verđa ađ hennar menn stćđu yfir höfuđsvörđum hans.
Ekki gekk ţađ eftir. Hákon tók ţátt í Önundarbrennu međ frćnda sínum, Guđmundi dýra. Í eftirmálum var sótt ađ Hákoni, brćđrum hans og vinum. Hákon og félagar gáfust upp og vildu flestir gefa honum griđ. Hákon ţótti mildur, kom t.d. í veg fyrir aftöku Ögmundar sneis er hafđi fíflađ móđur hans. Kom ţá til skjalanna Sigurđur grikkur og bauđst til verksins.
Hákon svarar: ,,Ţađ myndi ég helst kjósa ţví ađ frá ţér er ég ómaklegastur ţeirra manna er hér eru. Ég tók viđ ţér félausum er ţú komst út [ţ.e. til Íslands] og veitti ég ţér vist.En ég stóđ ţig ţrisvar í hvílu hjá Guđrúnu konu minni."
Guđrún er ekki til frásagnar um hvađ ţeim Sigurđi grikk fór á milli viđ hvílubrögđin. Ég trúi ađ Guđrún hafi veriđ leiksoppur vondra manna.
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 17. maí 2021
ESB efast um Schengen - misheppnuđ flóttamannastefna
Stefna Evrópusambandsins gagnvart flóttamönnum virkar ekki, viđurkennir einn af ćđstu ráđamönnum sambandsins, Michel Barnier. Hann vill banna viđtöku flóttamanna til ESB í ţrjú til fimm ár og endurskođa Schengen-samstarfiđ.
Barnier var ađalsamningarmađur ESB gagnvart Bretum í Brexit-útgöngunni og nýtti hvert tćkifćri til ađ kenna Breta viđ rasisma, skrifar dálkahöfundur Telegraph.
Annar dálkahöfundur sömu útgáfu rekur sinnaskiptin til Frakklands, heimalands Barnier.
Opingáttarstefna síđustu ára gagnvart flóttamönnum er ađ syngja sitt síđasta í Brussel. Vandrćđin sem sköpuđust í Evrópu eru rétt ađ byrja.
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)