Play er EES og alþjóðvæðingin

Alþjóðavæðing Íslands hefst með EES-samningnum 1994. Með þeim samningi gáfu Íslendingar frá sér drjúgan skerf af fullveldinu, til góðs og ills.

Margir vinstrimenn og kratískir hægrimenn, Samfylking og Viðreisn, vildu ganga lengra og afhenda Brussel algjört forræði yfir íslenskum málum, með inngöngu í Evrópusambandið.

Flugfélagið Play er skilgetið afkvæmi EES-samningsins. Forseti ASÍ segir félagið ,,hættulegt íslensku launafólki."

Einu sinni studdi ASÍ aðild Íslands að ESB.

Hver er stefnan núna?

 


mbl.is Play er stórhættulegt fyrirtæki segir Drífa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslímar kljúfa ESB - Pútín hjálpar

Múslímar frá Írak eru í þúsundavís á landamærum Póllands, Lettlands og Litháen annars vegar og hins vegar Hvíta-Rússlands. Þeir vilja komast til Vestur-Evrópu i betri lífsgæði.

Pólland kærir sig ekki um múslíma og hefur lent upp á kant við Evrópusambandið, sem vill að Pólverjar og önnur aðildarríki í Austur-Evrópu taki sinn skerf að múslímum.

Ágangur múslíma á ESB-ríki í austri eykur klofninginn í Brussel-bandalaginu.

En hvað eru múslímar frá Írak að þvælast í gegnum Hvíta-Rússland og Pólland á leið sinni til Vestur-Evrópu?

Jú, segir Telegraph, hér er Pútín Rússlandsforseti að verki og bandamaður hans, Alexander Lukashenko í Hvíta-Rússlandi.

ESB seilist til áhrifa í bakgarði Rússa, Úkraínu, og ybbir sig við Hvít-Rússa. Pútín notar á móti múslíma sem mennsk vopn á þandar taugar Brussel-bandalagsins.

Kaldrifjað? Já, en kallast öðru nafni stórveldapólitík. 


mbl.is Pólverjar stöðva fjölda flóttamanna við landamæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. nóvember 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband