Sósíalískur vinnufriður er mótsögn

Sólveig Anna var kjörin formaður Eflingar í mars 2018. Kjörsókn var 15%. Þau 2099 atkvæði sem listi Sólveigar Önnu fékk voru ekki sterkt umboð í félagi með 16500 félagsmenn.

Sólveig Anna og bauð sig fram undir merkjum sósíalista sem sjá arðræningja og stéttaróvini í hverju horni.

Herskár málflutningur Sólveigar Önnu og félaga er úr tóni og takti við siði og venju á vinnumarkaði. Sósíalískur vinnufriður í borgaralegu samfélagi er mótsögn. Annað hvort varð að víkja, veruleikinn eða sósíalisminn. Byltingin fjaraði út á skrifstofum fyrsta sósíalíska verkalýðsfélagsins á þessari öld. Ekki kemur það á óvart.  


mbl.is Beiðni um vinnufrið „afdráttarlaust hafnað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nornaveiðar og loftslag

Konur voru brenndar á báli á 17. öld, sakaðar um að vera nornir. Litla ísöld er tímabilið kallað frá 1300 til 1900. Á kaldasta tímabilinu 1560 til 1580 var kveikt í konum í kippum í Evrópu. Það þurfti að kenna einhverjum um kuldakastið, segir í samantekt um málið.

Á 17. öld trúði almenningur að nornir væru til. Í samtímanum trúir almenningur á syndina í manninum.

Á 17. öld var kuldatíð sem enginn gat skýrt nema með vísun í yfirskilvitleg öfl. Á okkar dögum er hvorki kulda- né hitatíð. Frá 1880 hefur meðalhiti hækkað um eina gráðu. Það er viðurkennd staðreynd, óumdeild. Hamfarirnar eru í huga fólks ekki veruleikanum.

Án staðreynda er skáldað um framtíðina, að hún verði manngerð hörmung. Sænsk saklaus unglingsstúlka flytur boðskap um endalok heimsins. I leiðinni varpar Gréta ljósi á trúarmenninguna um syndugt mannkyn. Vísindaskáldskapur og erfðasyndin.  Gott bíó.


mbl.is Greta segir stjórnmálamenn bara vera að þykjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. nóvember 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband