Mánudagur, 1. nóvember 2021
Jesú, límiđ og loftslagiđ
Sumir Bretar líma andlitiđ á götumalbik til ađ mótmćla manngerđu loftslagi. Karl og kona í Svíţjóđ límdu hendur sínar á flugbraut í sama tilgangi. Heimselítan, mínus valdamenn í Kína og Rússlandi, hittist í Glasgow til ađ bjarga jörđinni frá manngerđri hlýnun um 1,5 C.
Áriđ ţúsund, ţegar Íslendingar tók kristni og bjuggu Grćnland ađ íslenskum hćtti, var 1,5 gráđum hlýrra en í dag. Vísindin segja ţađ.
Önnur vísindi segja hlýnun síđustu tveggja áratuga ekki af völdum mannsins heldur skýjafari. Sólarvirkni og skýjafar skýrir flökt á hitastigi jarđar. Sem, vel ađ merkja, er fjarska lítiđ, eins og Ágúst H. Bjarnason sýnir skilmerkilega.
Viđ lifum í stöđugu loftslagi. Jörđin hefur ekki hlýnađ nema um eina gráđu frá iđnbyltingu. Ţá stóđ yfir litla ísöld sem lauk um 1900.
Sumir vísindamenn segja hamfarahlýnun yfirvofandi. Ţeim er fremur trúađ en hinum sem telja náttúrulegar skýringar á loftslagsbreytingum. Ástćđan er trúarleg.
Einu sinni áttu vesturlönd Jesú Krist sem frelsara. Kristin kirkja lagđi út af orđum frelsarans og kenndi okkur um syndina og sáluhjálp. Á seinni tímum er Jesú upp á punt og hvorki trúum viđ á himnaríki né helvíti.
Í stađ kristni kom trú á manninn. Ósköp falleg hugsun á yfirborđinu. En henni fylgir ađ mađurinn sé lávarđur heims og ráđi ragnarökum. Í öđru lagi veit hvert mannsbarn ađ viđ erum syndug upp fyrir haus. Trú á manninn er trú á synd og sjálfspíningu.
Mađurinn andar frá sér koltvísýringi, CO2. Án CO2 er ekkert líf á jörđinni. CO2 er ađeins 0,04 prósent af andrúmsloftinu. Og af öllu CO2 í andrúmsloftinu sér náttúran um 97% en athafnir mannsins, andardráttur međtalinn, standa fyrir ţrem prósentum. Á yfirborđinu eigum viđ ađ heita vísindalega lćs. Í reynd erum viđ álíka nćm á veruleikann og Biden Bandaríkjaforseti.
Trú á manninn er sannfćring um ađ syndin stjórni heiminum. Engin furđa ađ fólk lími andlit og útlimi á malbik. Í trúarmenningu samtímans er mađurinn syndugt skriđdýr.
![]() |
Öfgakennt veđur nýr veruleiki |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)