Mannréttindi að vera þingmaður? Lýðræðið segir nei

Einstaklingar, sem um stund voru þingmenn vegna mistaka í talningu, kæra endurtalningu sem leiddi til réttar niðurstöðu.

Alþingiskosningar eru listakosningar, ekki einstaklingskjör. Við veljum ekki á milli einstaklinga heldur framboðslista.

Þau Lenya Rún Taha Karim Pírati í Reykjavíkurkjördæmi, Guðmund­ur Gunn­ars­son, fram­bjóðandi Viðreisn­ar og Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, í Sam­fylk­ing­au eru í raun að kæra sig til þingmennsku á kostnað samflokksmanna sinna sem fengu kjör. Magnús Örn Norðdahl, odd­viti Pírata í Norðvest­ur­kjör­dæmi, vill einfaldlega ekki una lýðræðislegri kosningu.

Í lýðræði eru það ekki mannréttindi að verða þingmaður.

 


mbl.is Lenya skilar kæru til kjörbréfanefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öreigabolti, ofurríkir og mannréttindi

Fótbolti var öreigasport í öndverðu. Enskir verkamenn báru íþróttina til Suður-Ameríku. Hundrað árum síðar er boltaspark þeirra bestu elítuíþrótt. Drengir á fermingaraldri eru seldir og keyptir til að verða fótboltaguðir á ofurlaunum.

Ofurríkir vilja hlutdeild í sviðsljósinu og kaupa sér sparklið. (Íslenskir lífeyrissjóðir keyptu Stoke og Björgólfur eldri West Ham).

Sádar, sem reka múslímskt ættarveldi kennd við Arabíu, eru í þann veginn að kaupa liðið í KR-búningunum, Newcastle.

Og þá er spurt mannréttindi. Smá ves með þau. Á leiðinni frá öreigabolta til ofurlauna og ríkidæmis sagði fátt af mannréttindum.

Eru ekki annars mannréttindi að komast í álnir?

 


mbl.is Ekki stafkrókur um mannréttindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð blessi Ísland 13 ára

Ræða Geirs H. Haarde þáverandi forsætisráðherra, Guð blessi Ísland, er komin á fermingaraldur. Ræðan eldist vel. Í henni má lesa sögu dramatísku sólarhringana fyrir hrun bankanna.

Af þeim sökum gat ég þess í gærkvöldi að það væri mat mitt og ríkisstjórnarinnar að ekki væri ástæða til sérstakra aðgerða af okkar hálfu. Engin ábyrg stjórnvöld kynna afdrifaríkar aðgerðir varðandi banka- og fjármálakerfi sinnar þjóðar nema allar aðrar leiðir séu lokaðar.

Þessi staða hefur nú í dag gerbreyst til hins verra. Stórar lánalínur við bankana hafa lokast og ákveðið var í morgun að loka fyrir viðskipti með bankastofnanir í Kauphöll Íslands.

Nú reynir á ábyrg og fumlaus viðbrögð. Ég mun nú á eftir mæla fyrir frumvarpi á Alþingi sem mun gera ríkissjóði kleift að bregðast við því ástandi sem nú er á fjármálamörkuðum.

Banka- og efnahagshrunið 2008 tók fljótt af, var mælt í vikum og mánuðum. Aftur situr enn í okkur pólitíska og siðferðilega lexían sem draga má af hruninu. Svokallaða.


Bloggfærslur 7. október 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband