Þriðjudagur, 5. október 2021
Landsliðið verndað gegn árangri
Kjölfestan í íslenska landsliðinu og fyrirliði, Aron Einar Gunnarsson, var ekki valinn í hópinn til að þóknast Stígamótafasistum sem gefa út yfirlýsingu um hverja megi velja í landsliðið og hverja ekki.
KSÍ lætur nokkrar illa gerðar hræður út í bæ segja sér fyrir verkum. Rökin eru þau að ,,vernda þurfti liðið." Fyrir hverju? Karlhöturum í Stígamótum? Stelpum í leit að sykurpabba?
Það er óþarfi að vernda Stígamótalandsliðið gegn árangri. Hann verður hvort eð er aldrei neinn.
![]() |
Tókum ákvörðunina til að vernda liðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 5. október 2021
Píratar og RÚV hóta spillingarumræðu
Samtök sem Píratar stjórna hóta að klína spillingarstimpli á Ísland verði ekki farið að kröfum þeirra um endurkosningu í NV-kjördæmi. RÚV lögmætir hótun Pírata með falsfrétt.
Transparency International er hluti af alþjóðastarfi Pírata. Þar dunda Píratar sér við að skrifa skýrslur um spillingu sem þeir sjálfir bjóðast til að lagfæra. Auðvitað á góðu kaupi í þægilegri innivinnu.
RÚV er ekki að hafa fyrir því að greina frá stöðu Transparency International í tengslaneti Pírata. Það er einkenni falsfrétta að segja aðeins hálfa söguna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 5. október 2021
Stígamótafasismi er valdafemínismi í praxís
Stígamótafasisminn skiptir mannfólkinu í þolendur og gerendur. Þolendur ákæra, sakborninga er að játa og taka út refsingu sem á þessu stigi málsins er útskúfun. Lesist: konur ákæra, karlar eru fyrirfram sekir.
Á seinni stigum gæti gamanið farið að kárna. Stígamótafasistar fengu inni hjá Sósíalistaflokki Íslands og boðuðu ofbeldissveitir ,,skipaða sjálfstæðu lögreglu- og ákæruvaldi" til að sjá um afgreiðslu þeirra ákærðu.
Valdafemínisma gengur allt í haginn þessi misserin. Um 70 prósent háskólanema eru konur, formleg völd streyma í stríðum straumi inn meyjarhaftið. Karlar eru óðum að verða húsverðir í kvennahöll. Skyldi ætla að hægja mætti á fasísku orðræðunni. En þar liggur hundurinn grafinn. Mikill vill meira.
,,Geð konunnar er yfirborð, úfin og ólgandi slikja á grunnu vatni," mælti Zaraþústra Nietzsche.
En hvað liggur í djúpinu?
![]() |
Tekur afstöðu gegn þolendum og verður ekki saknað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |