Miðvikudagur, 20. október 2021
Siðblinda og geðveikt slúður Önnu Sigrúnar
Anna Sigrún Baldursdóttir skrifar bakþanka Fréttablaðsins í dag. Fyrirsögnin er Geðveikt. Bæði Vísir og Hringbraut segja Önnu Sigrúnu senda tilfallandi höfundi pillu í bakþankanum. En líkt og háttur er slægra er skotmarkið ekki nafngreint. Tilgangurinn er að breiða út slúður að hætti Gróu á Efstaleiti.
Anna Sigrún mun vera starfsmaður í heilbrigðiskerfinu og leitar að siðblindu í hjáverkum. Skoðum hvað geðlæknir segir um siðblindu:
Siðblindir upplifa síður djúpstæðar tilfinningar eins og ást, sorg eða tryggð og eru illa færir um eðlilegt og náið tilfinningalegt samband við aðra manneskju. Þeir eru kaldlyndir, eiga erfitt með að setja sig í spor annarra og sjá ekki annað fólk sem hugsandi tilfinningaverur. Þetta eru oft sjálfumglaðir og hrokafullir einstaklingar sem hunsa reglur samfélagsins til þess að fullnægja eigin þörfum, sama hvað það kostar, án sektarkenndar eða eftirsjár. Margir siðblindir eru hvatvísir og hafa litla sjálfsstjórn. Ógnandi hegðun og ofbeldi eru hluti af vopnabúri þeirra til að ná markmiðum sínum. Þeir hafa yfirleitt fá eða engin langtímamarkmið heldur lifa fyrir daginn í dag og þeim fer fljótt að leiðast ef ekkert er um að vera til að svala spennufíkninni. Aðrir siðblindir eru minna bráðir og nota persónutöfra, lymskulega stjórnsemi, lygar, svik og blekkingar í samskiptum við aðra. Siðblindir þekkja almennt muninn á réttu og röngu, eru meðvitaðir um afleiðingar gjörða sinna, en þeir taka enga ábyrgð á þeim. Sterk tengsl eru milli siðblindu og beitingar ofbeldis. Um 20% fanga eru siðblindir og þessir einstaklingar tilheyra hópi erfiðustu og hættulegustu afbrotamannanna.
Ef Anna Sigrún hefði haft tilfallandi höfund í meðferð væri þetta giska grimm og afgerandi analísa. En Anna Sigrún og Páll Vilhjálmsson hafa aldrei hist, svo vitað sé.
Hitt er vitað Anna Sigrún og Páll hafa hvort sína skoðun á málefnum RÚV og finnst sitthvað um leiksýningar sem þar eru sviðsettar.
Anna Sigrún færir vinnubrögð RÚV yfir á svið geðsjúkdóma. Útkoman sú sama, slúður án heimilda. Eins og Anna Sigrún segir sjálf: geðveikt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 20. október 2021
Leitað að glæp í flýti
Æðibunugangur í leit að glæp endar vanalega út í skurði. Eftir endurtalningu í NV-kjördæmi, með tilheyrandi breytingu á úthlutun uppbótarþingsæta, vildu sumir láta ógilda þingkosningarnar á öllu landinu.
Til vara var krafist uppkosningar í NV-kjördæmi. Hvorutveggja hefði verið óðagot og illa þjónað lýðræðinu.
Skynsemin náði yfirhöndinni og sérstök þingnefnd gefur sér góðan tíma til að fara yfir málið og leita skýringa á málsatvikum.
Vönduð stjórnsýsla er til marks um heilbrigði, taugaveikluð ákvörðun í hita augnabliksins er annað og verra. Eiginlega gaga og gúgú.
![]() |
Við erum að púsla saman mynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)