Kynjakvóti: 2000 kvenkennarar í hættu

Konur eru aðeins 10% framkvæmdastjóra. Hlutfall karlkyns grunnskólakennara er litlu hærra eða 16% og fer lækkandi. Ákall er um að hækka hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra og setja kynjakvóta í lög.

Allur þorri framkvæmdastjóra starfar á einkamarkaði. Allir grunnskólakennarar eru opinberir starfsmenn.

Áður en ríkisvaldið setur lög um hvernig kaupin gerast eyrinni í atvinnulífinu verður ríkið að leiðrétta kynjahalla hjá hinu opinbera. Að öðrum kosti yrði hrár valdafemínisminn of sýnilegur

Um 4500 konur eru grunnskólakennarar. Til að jafna kynjahlutföllin þarf að fækka þeim um tæp tvö þúsund.

Ef jafnréttissinnar á alþingi legðu fram frumvarp að fækka kvennastörfum til að fjölga körlum í stétt kennara myndi víða heyrast hljóð úr horni. Vitanlega mun slíkt frumvarp aldrei líta dagsins ljós. En kannski frumvarp um að annar hver framkvæmdastjóri skuli vera kvenmaður. Það er svo freistandi að slá sig til riddara hjá valdafemínistum.

 


mbl.is Konur aðeins 10% framkvæmdastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. október 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband