Miðvikudagur, 26. ágúst 2020
Krónan jafnar byrðinni
Lægra gengi krónunnar kemur ferðaþjónustunni vel. Afraksturinn af hverjum og einum erlendum ferðamanni verður meiri enda greiða þeir fyrir sitt með gjaldeyri.
Krónan tekur mið af umsvifum íslensks efnahagsbúskapar. Ef við byggjum við áþján erlends lögeyris myndi hann hvorki hækka né lækka sama hvernig áraði á Íslandi.
Krónan er sannur jafnaðarmaður.
(Skrifað f.h. krónuvinafélagsins).
![]() |
Gengislækkun krónu eykur verðbólgu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 26. ágúst 2020
Melania og Sigmundur Davíð
Ísland er ónýtt, var pólitík Samfylkingar eftir hrun. Skilaði þeim stórsigri 2009 en enn stærra tapi 2013. Takmörk eru fyrir því hve lengi fólk nennir að hlusta á að samfélag þess sé ónýtt.
Demókratar vestra reka samfópólitík. Bandaríkinu séu ónýt og Trump sitji efst á ruslahaugnum.
Stundum þarf að segja fólki að allt sé í steik - svo að hægt sé að koma tiltekt á dagskrá. En yfirdrifnar hörmungarfrásagnir koma fyrr en síðar sögumönnum í koll.
Forsetafrúin í Hvíta húsinu ætlar að taka Sigmund Davíð á demókrata. Virkaði 2013. Gæti heppnast 2020.
![]() |
Samkennd og sameining |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |