Afvopnun og hagsæld fylgir Trump

Trump kallar bandaríska hermenn heim, m.a. frá Þýskalandi, og dregur úr hernaðarumsvifum í miðausturlöndum. Trump býr til störf í Bandaríkjunum í miðri farsótt.

Frjálslyndir vinstrimenn eru aftur herskáir. Fjölmiðlar á þeirra vegum halda áfram að dingla rússagrýlunni framan í Trump og lemja stríðshúðir líkt og í kalda stríðinu.

Trump er aðeins verkfæri. Kalda stríðinu lauk fyrir 30 árum og fyrir aldamót var alþjóðahyggjan gengin sér til húðar. Trump færir breyttar forsendur í pólitíska stefnu.

Frjálslynda vinstrið, sem einu sinni þóttist friðarsinnað, getur ekki á sér heilu tekið og efnir til innanlandsóeirða - Svört líf skipta máli - og heimtar blóðsúthellingar á fjarlægum slóðum. 

Heimsumskiptin, sem Trump er verkfæri fyrir, eru líklega ekki jafn stór og franska byltingin, sem þurfti sinn Napoleón. Engu að síður eru þau nokkuð veruleg og fyrri hálfleikur aðeins hálfnaður.


mbl.is „Þetta eru sögulegar tölur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. júlí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband