Fimmtudagur, 25. júní 2020
Össur innan handar í Reykjavík og Kína
Össur fyrrum formaður Samfylkingar var innflytjanda kínverskra strætisvagna innan handar að selja þá í borgarfyrirtækið Strætó bs.
Kínversk tækni er vitanlega rómuð fyrir áreiðanleika.
Rétt eins og engum hvarflar spillingu til hugar þegar samfylkingarmenn sitja beggja vegna borðsins. Sei, sei, nei.
![]() |
Össur innan handar við umboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 25. júní 2020
Lýðræðið drepst úr leiðindum
Leiðindi eru lýðræðinu hættulegri en valdhyggja einstaklinga og stjórnmálaafla. Í útlöndum eru áhyggjur að farsóttin grafi undan lýðræðinu og leiði til valda andlýðræðisleg öfl.
En það er ekki styrkur valdamanna sem fær þeim völd heldur leiðindi þeirra sem þykjast í orði kveðnu ástvinir lýðræðisins.
Leiðindin gera tilveruna gráa. Litskrúðugir menn koma á vettvang, hirða athyglina og völdin í framhaldi.
Hverjum er ekki sama hvenær alþingismenn fara í sumarfrí?
![]() |
Enn ósamið um þinglok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)