Sólveig, metoo og verktakar

Sólveig í Eflingu líkti stöðu ófaglærðra kvenna í leikskólum borgarinnar við þjáningu stallsystra þeirra í metoo-byltingunni.

Mannúðleg lausn er í sjónmáli, að verktakar yfirtaki þjakaðar Eflingarkonur.

Viðbrögð Sólveigar eru þessi: „Það væri al­gjör­lega tryll­ings­legt inn­legg inn í þessa deilu. Guð hjálpi okk­ur ef við erum kom­in á þann stað.“ 

Það er vandlifað.  


mbl.is „Guð hjálpi okkur ef við erum komin á þann stað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögbrot í ráðhúsinu

,,Starfsmenn Reykjavíkurborgar brutu lög um skjalavörslu og skjalastjórn í tengslum við uppbyggingu Braggans í Nauthólsvík. Það er niðurstaða frumkvæðisrannsóknar Borgarskjalasafns Reykjavíkur," segir í Fréttablaðinu.

Verður enginn sóttur til ábyrgðar? Er í lagi að stunda stórfellda yfirhylmingu, fela og eyða skjölum og opinberum gögnum? Má hóta starfsmönnum öllu illu, einelti og atvinnumissi, ef þeir voga sér að benda á spillinguna í æðstu yfirstjórn borgarinnar?

Lögbrot og spillingu í ráðhúsi höfuðborgarinnar verður að uppræta. Að öðrum kosti verður daglegt brauð að brjóta lög og siðlaus stjórnunarmenning festir rætur.


mbl.is Borgin þegar brugðist við bragga-ábendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. febrúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband