Þriðjudagur, 27. október 2020
Hælisleitendur borga fyrir ófrelsið
Hælisleitendur kaupa sér flugmiða til Íslands og segja að hér á landi séu þeir vanræktir og sviptir frelsi sínu.
Ekki er heil brú í þessari röksemdafærslu.
Hvers vegna ekki að spara sér ómakið, sleppa því að kaupa farmiða til Íslands? Þá ætti hælisfólkið bæði pening og frelsi.
![]() |
Útlendingastofnun segir alla fá grímur og mat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 27. október 2020
Erdogan: múslímar, förum aftur á steinöld
Tyrkland keppir við Sádí-Arabíu um forystuhlutverk múslíma á alþjóðavettvangi. Tyrkland hótar Frakklandi, og þar með Evrópu, viðskiptaþvingunum vegna deilna um skopmyndir af spámanninum.
Brandarinn er að án vestrænnar tækni, nýsköpunar og þróunar hyrfu múslímaríkin aftur á steinöld. Bílar, flugvélar, ísskápar, tölvur, stafræn fjarskipti yrðu að víkja fyrir hestvagni og landpósti.
Múslímar í milljónavís flýja heimkynni sín til vesturlanda í leit að lífsgæðum sem eru þegar af skornum skammti í ríkjum spámannsins. Erdogan steytir hnefann að hjálpræðinu.
Trúarmenning múslíma fóstrar öfgar og er helst þekkt fyrir að framleiða hryðjuverk. Verði Erdogan og félögum að góðu í viðskiptastríði við vesturlönd.
![]() |
Erdogan sniðgengur franskar vörur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)