Mánudagur, 6. janúar 2020
Íran sćttir Evrópu og Pútín
Pútín og Rússlandi var úthýst úr samfélagi ţjóđanna eftir misheppnađa tilraun frjálslyndra í Evrópu og Bandaríkjunum ađ gera Úkraínu ađ ESB-ríki og Nató-međlim. Jafnvel litla saklausa Ísland var knúiđ til ađ setja viđskiptabann á Rússland, slíkar voru öfgarnar.
Rússar unnu ţađ eitt til saka ađ gćta lögmćtra öryggishagsmuna í Úkraínudeilunni. Heimsvaldastefna frjálslyndra ţoldi ţađ ekki. Trump var grunađur um ađ vilja sćttast viđ Pútín. Óđara var glókollur stimplađur sem útsendari Moskvu.
ESB-ríki sökuđu Pútín um ađ skipta sér af kosningum og töldu hann djöful til höfuđs frjálslyndri Evrópu.
Áramótaatburđir í miđausturlöndum, vaxandi ágengni Íran og viđspyrna Trump-stjórnarinnar, breytir stöđu heimsmála.
Rússlandsferđ Merkel er til marks um sáttfúst raunsći. Pútín er laustengdur bakhjarl Íran og Tyrklands upp á síđkastiđ - og í hernađarbandalagi međ Assad í Sýrlandi. Á međan Trump og klerkarnir í Íran skiptast á hótunum hugsar Pútín nokkra leiki fram í tímann. Merkel veit ţetta og sćkir heim Pútín ađ finna diplómatískar lausnir.
Merkel til Moskvu vegna Írans | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 6. janúar 2020
Kjarnorkuvopn og Íran: helförin II
Yfirlýst stefna klerkastjórnarinnar í Íran er ađ gjöreyđa Ísraelsríki. Í Teheran eru hommar teknir af lífi opinberlega.
Kjarnorkuvopn í höndum múslímaklerkanna er ávísun á hamfarir á heimsvísu sem veröldin hefur ekki séđ síđan Hitler var og hét.
Ţjóđverjar eru nćmir á sögulegar hamfarir. Ađalritstjóri Bild skrifar ţakkarnótu til Trump fyrir aftökuna á Soleimani, höfundi útţenslustefnu Íran. Í Welt er harmađ ađ Ţjóđverjar standi enn á ný röngu megin sögunnar međ ţví ađ styđja ekki Trump ađ losna viđ yfirgang írönsku klerkanna.
ESB-ríkin stóđu ađ samkomulagi viđ Íran um kjarnorkuvopn ásamt Obama forseta Bandaríkjanna. Söguleg hliđstćđa samkomulagsins er Munchen 1938 ţegar Bretland og Frakkland gáfu Hitler frítt spil í Miđ-Evrópu. Ţegar illskan mćtir frjálslyndi sigrar hún.
Trump sagđi upp samningnum viđ klerkana í Teheran. Sögukaflinn sem skrifađur er um ţessar mundir er framhaldssaga um hvernig eigi ekki ađ láta illţýđi stjórna heiminum.
Íranar undirbúa uppsögn kjarnorkusamkomulagsins | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)