Mánudagur, 6. janúar 2020
Íran sættir Evrópu og Pútín
Pútín og Rússlandi var úthýst úr samfélagi þjóðanna eftir misheppnaða tilraun frjálslyndra í Evrópu og Bandaríkjunum að gera Úkraínu að ESB-ríki og Nató-meðlim. Jafnvel litla saklausa Ísland var knúið til að setja viðskiptabann á Rússland, slíkar voru öfgarnar.
Rússar unnu það eitt til saka að gæta lögmætra öryggishagsmuna í Úkraínudeilunni. Heimsvaldastefna frjálslyndra þoldi það ekki. Trump var grunaður um að vilja sættast við Pútín. Óðara var glókollur stimplaður sem útsendari Moskvu.
ESB-ríki sökuðu Pútín um að skipta sér af kosningum og töldu hann djöful til höfuðs frjálslyndri Evrópu.
Áramótaatburðir í miðausturlöndum, vaxandi ágengni Íran og viðspyrna Trump-stjórnarinnar, breytir stöðu heimsmála.
Rússlandsferð Merkel er til marks um sáttfúst raunsæi. Pútín er laustengdur bakhjarl Íran og Tyrklands upp á síðkastið - og í hernaðarbandalagi með Assad í Sýrlandi. Á meðan Trump og klerkarnir í Íran skiptast á hótunum hugsar Pútín nokkra leiki fram í tímann. Merkel veit þetta og sækir heim Pútín að finna diplómatískar lausnir.
![]() |
Merkel til Moskvu vegna Írans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 6. janúar 2020
Kjarnorkuvopn og Íran: helförin II
Yfirlýst stefna klerkastjórnarinnar í Íran er að gjöreyða Ísraelsríki. Í Teheran eru hommar teknir af lífi opinberlega.
Kjarnorkuvopn í höndum múslímaklerkanna er ávísun á hamfarir á heimsvísu sem veröldin hefur ekki séð síðan Hitler var og hét.
Þjóðverjar eru næmir á sögulegar hamfarir. Aðalritstjóri Bild skrifar þakkarnótu til Trump fyrir aftökuna á Soleimani, höfundi útþenslustefnu Íran. Í Welt er harmað að Þjóðverjar standi enn á ný röngu megin sögunnar með því að styðja ekki Trump að losna við yfirgang írönsku klerkanna.
ESB-ríkin stóðu að samkomulagi við Íran um kjarnorkuvopn ásamt Obama forseta Bandaríkjanna. Söguleg hliðstæða samkomulagsins er Munchen 1938 þegar Bretland og Frakkland gáfu Hitler frítt spil í Mið-Evrópu. Þegar illskan mætir frjálslyndi sigrar hún.
Trump sagði upp samningnum við klerkana í Teheran. Sögukaflinn sem skrifaður er um þessar mundir er framhaldssaga um hvernig eigi ekki að láta illþýði stjórna heiminum.
![]() |
Íranar undirbúa uppsögn kjarnorkusamkomulagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)