Miðvikudagur, 22. janúar 2020
Frosti um ferðahvata opinberra starfsmanna
Opinberir starfsmenn safna sér vildarpunktum, þ.e. afsláttarkjörum, þegar þeir ferðast á kostnað ríkisins. Afsláttinn nýta þeir fyrir sig og fjölskylduna.
Þetta þýðir að innbyggður hvati er fyrir ríkisstarfsmenn að ferðast til útlanda. Til viðbótar koma dagpeningar sem reglulega eru dulin launauppbót.
Rétt af Frosta að vekja athygli á þessum agnúa á fyrirkomulagi ferðalaga opinberra starfsmanna.
![]() |
Fór aldrei til útlanda á kostnað þingsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 22. janúar 2020
Samherjamál verður Stjánakreisting
,,Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir fundinn hafa verið upplýsandi og að hann hafi kreist allan þann ágreining sem er á milli hennar og sjávarútvegsráðherra."
Ofanritað er tilvitnun í viðtengda frétt.
Spurning hvort RÚV stökkvi ekki til og geri fréttaskýringu um Stjánakreistingu.
![]() |
Til góðs að ræða hæfi ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 22. janúar 2020
Atvinnuleysi: Íslendingar og útlendingar
Atvinnuleysi meðal háskólamanna hefur um langa hríð verið meira en almennt gengur og gerist. Formaður BHM hvatti til aðgerða í þágu atvinnulausra háskólamanna fyrir tveim árum.
Almennt atvinnuleysi jókst á síðasta ári í kjölfar samdráttar í ferðaþjónustu.
Háskólamenn eru yfirgnæfandi Íslendingar. Í ferðaþjónustu og byggingariðnaði eru útlendingar stórt hlutfall starfsmanna, sem ýmist eru búsettir hér á landi eða farandverkafólk.
Ríkið getur illa farið út í atvinnusköpun í stórum stíl. Það er ekki hlutverk ríkisins að búa til störf, atvinnulífið á að sjá um það. Enn síður er það hlutverk ríkisins að sjá farandverkafólki fyrir atvinnu.
![]() |
Bíða og sjá hvernig atvinnuleysi þróast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)