RÚV í eineltisham: Haraldur skal víkja

Fyrsta frétt RÚV í hádeginu var að Haraldur ríkislögreglustjóri eigi að missa starf sitt. Formaður lögmannafélagsins, já lögmanna, var kallaður til að kynda undir óánægju með Harald.

Í kvöldfréttum RÚV verður ábyggilega vitnað í aðra sem eiga hlut að máli, t.d. formann Félags grunnskólakennara eða einhvern hjá Samtökum fiskvinnslustöðva, um að Haraldur sé ómögulegur.

Fréttastofa RÚV hætti fyrir löngu að segja fréttir. Efstaleiti sérhæfir sig í að hanna atburðarás þar sem ein fjöður er gerð að fimm hænum.


Gulli utanríkis: XD er glópaflokkur

Glópahlýnun, trúin á manngert veðurfar, misnotar börn í þágu málstaðarins. Allir með eitthvað á milli eyrnanna skynja að hér er eitthvað málum blandið. Sómakært fólk heldur sig frá myrkraöflum sem misnota börn í þágu subbulegra vísinda.

En ekki Gulli utanríkis. Stoltur kynnir hann í New York stuðning Sjálfstæðisflokksins við glópahlýnun. Illskárri frammistaða hefði verið að ítreka samúð með glæpamönnum á Filippseyjum. Þetta er saga Sjálfstæðisflokksins síðustu missera. Þegar tveir kostir eru í boði skal taka þann verri.

Pólitík Gulla og unglinganna í forystu Sjálfstæðisflokksins er að drekkja Íslandi með virkjunum í þágu ESB til að bjarga ímynduðu manngerðu veðurfari úti í hinum stóra heimi. 

Unglingaforysta XD er í krossferð gegn íslenskum hagsmunum en starfar eftir hugmyndafræði alþjóðasinna.  Vinstriflokkarnir sóttu áður línuna til Moskvu en Sjálfstæðisflokkurinn stóð í ístaðinu. Nú leita unglingarnir til Brussel eftir bjargræði.

Fyrirmynd unglinganna er Viðreisn. Móðurflokkurinn er kominn fang óþekktarangans. 


mbl.is „Baráttan byrjar hjá okkur sjálfum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. september 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband