Föstudagur, 20. september 2019
Barnaleg mótmæli
Fullorðnir etja börnum á foræðið í mótmælum gegn ævintýrinu um manngert veður. Í gamla daga voru börn hrædd til hlýðni með sögum um álfa og tröll. Bensín og dísil eru drýsildjöflar samtímans.
Bernskir fullorðnir og hrædd börn er póstmódernísk pólitík byggð á göbbels-lögmálinu um síbylju valdastefs þar sem sannleikurinn er í aukahlutverki.
Krakkarnir á Austurvelli verða í fyllingu tímans nógu gamlir til að skilja bernskubrekin. Þeir fullorðnu við fótstall frelishetjunnar læra ekki að skammast sín. Sumir eru einfaldlega óskammfeilnir að upplagi.
![]() |
Við verðum öll að vakna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 20. september 2019
Bítlarnir um Brexit
Eftirlifandi
Paul: Allir saman, nú.
Ringo: Látið vera.
Látnir
George: Sólskin.
John: Ekki bregðast mér.
![]() |
Bítlarnir ósammála um brexit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. september 2019
Krónan ber vexti, evran ekki
Á Íslandi er hægt að lækka vexti til að mæta niðursveiflu. Í Evrópu er ekki hægt að beita þessu hagstjórnartæki þar sem vextir eru í núlli eða jafnvel í mínus.
Krónan er vaxtaberandi gjaldmiðill en evran ekki. Að þessu leyti er krónan eðlilegur gjaldmiðill en evran afbrigðilegur.
Hvaða stjórnmálaflokkar vilja evru í stað krónu? Jú, þeir afbrigðilegu.
![]() |
Við erum í lagi en heimurinn ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)