ESB-útgáfan Fréttablaðið

Helga Magnússon fjárfesti ber þar niður í skoðanakaupum þar sem ESB er haft í hávegum, fyrst Hringbraut og núna Fréttablaðið.

Helgi er jafnframt bakhjarl Viðreisnar.

ESB-sinnar eiga fjárhagslegt athvarf hjá Helga fjárfesti.


mbl.is Helgi Magnússon kaupir í Fréttablaðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trú á yfirburði mannsins - og syndafallið

Manngert veður er ímyndun fólks sem einu sinni trúði á yfirburði hvíta mannsins og vildi steypa alla í sama mót vestrænnar menningar. Veður og loftslag lúta náttúruferlum sem við skiljum ekki nema að litlum hluta.

Sögulegar heimildir eru um hlýrra veðurfar en nú, bæði á miðöldum og á tímum Rómarveldis. Maðurinn kom hvergi nærri breytingum á loftslagi en nýtti sér aðstæður. Norrænir menn settust að á Íslandi og Grænlandi. Rómverjar sátu England á sínum tíma enda gátu þeir stundað þar landbúnað með sínum hætti á hlýskeiðinu sem við þá er kennt.

Skrítna fólkið sem trúir á manngert veður er einatt einnig þeirrar skoðunar að nú sér kortér í endalok siðmenningar. Þetta er sama stefið og í trúarbrögðum þar sem sérstöðu mannsins er fléttað saman við syndina og heimsendi.

 


mbl.is Aðeins kjarnorkustríð er stærri ógn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. júní 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband