Namibía skilur ekki RÚV-Ísland

Stjórnvöld í Namibíu standa í þeirri trú að þar sem RÚV er opinber stofnun hljóti fréttastofan að framfylgja stefnu stjórnvalda. Ákæra, réttarhöld og dómur RÚV um spillingu sé afgreiðsla íslenska ríkisins á Samherja-Namibíumálinu. 

Við sem heima sitjum vitum að RÚV er sjálfala ríkisfyrirtæki sem stjórnað er af dómgreindarlausum frekjuhundum á vinstri kanti stjórnmálanna. Í skjóli fjölmiðlavalds takur Efstaleiti mann og annan af lífi með einhliða fréttaflutningi byggðum á ótraustum heimildum, slúðri og sviðsettum atburðum.

Namibíumönnum er nokkur vorkunn. Hér heima fatta ekki allir rúvíska réttvísi. Þannig töldu Samherjamenn sig standa með pálmann í höndunum í deilu við Seðlabanka Íslands og ætluðu sér að koma fyrrum seðlabankatjóra í fangelsi fyrir að hafa vogað sér að rannsaka gjaldeyrisskil útgerðarinnar.

En þá greip RÚV í taumana, enda í samvinnu við Seðlabankann, og samdi handrit, Kveik-þáttinn alræmda, og sviðsetti mútugreiðslur Samherja í Namibíu (þið munið, rauð íþróttataska plús Helgi og Aðalsteinn).

Ákæra og réttarhöld RÚV leiddu til handtöku íslensks skipstjóra í Namibíu, kyrrsetnignar á togara og nú virðist að forstjóri Samherja skuli framseldur til namibískra lögregluyfirvalda.

Ríkisstjórn Ísland þorir hvorki að hreyfa legg né lið af ótta við að Efstaleiti skipuleggi mótmálaöldu sem hreki Kötustjórnina frá völdum.

Þannig er RÚV-Ísland. 


mbl.is Íslendingar ættu að rannsaka spillingu heima fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. nóvember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband