Föstudagur, 31. ágúst 2018
Móri og Hegel
Stjóri United, Mourinho, svarar gagnrýnisröddum með Hegel.
Þýski heimspekingurinn er þekktur fyrir stórar kenningar um heiminn. Eitt sinn var honum bent á að raunheimurinn passaði illa við fræðin.
,,Það er verst fyrir veruleikann," svaraði sá þýski.
Hegel er heimspekingur við hæfi Móra.
![]() |
Mourinho hvetur blaðamenn að lesa Hegel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 31. ágúst 2018
Bjarni, nú stígum við á bremsuna
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gerði ásælni Evrópusambandsins í íslensk innanríkismál að umtalsefni í vor.
Embættismenn í stöðugri leit að bithögum í Brussel eru fylgjandi framsali raforkumála Íslands til ESB. Embættismönnum finnst fullveldið engu skipta, þeir eru hvort eð er í áhrifastöðum bæði í Reykjavík og Brussel.
Almenningi finnst hins vegar skipta máli hvar völdin eiga heimilisfestu. Íslenskir kjósendur geta skipt um valdhafa í Reykjavík en ekki í Brussel.
![]() |
Flokkurinn hafni orkupakkanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 31. ágúst 2018
Stríðsmangarinn, vinstrihetjan og særða vinkonan
Vinstriútgáfur eins og New York Times, Washington Post og Guardian lyfta nýlátnum John McCaein á hetjustall. Hann var einn aðalhöfundur stríðsátaka í Úkraínu og Georgíu og einlægur stuðningsmaður innrásarinnar í Írak - sem hleypti af stað óöldinni í miðausturlöndum.
McCain var kaldastríðshaukur sem hélt áfram að skipta heiminum í vestur og austur, mennina í vonda og góða, þótt járntjaldið væri fallið og kommúnisminn dauður. Ást vinstrimanna á McCaein verður aðeins skýrð með hatri þeirra á Donald Trump, sitjandi forseta.
Fyrrum vinkona og varaforsetaefni McCain, Sarah Palin, geldur þess að hún styður Trump og er útilokuð frá jarðaförinni.
Við útför McCain er fleira borið til grafar en stríðsmangari.
![]() |
Palin meinað að vera viðstödd útför McCain |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)