Trump sameinar hægrimenn, líkt og Obama vinstrimenn

Donald Trump varð forseti þrátt fyrir að stór hluti Repúblíkanaflokksins væri opinberlega á móti honum. Hann fékk minnihluta atkvæði og fjöldamótmæli við innsetninguna í embætti.  En á innan við tveim árum  er Trump búinn að sameina flokkinn að baki sér og stefnir hraðbyri á annað kjörtímabil.

Hvað gerðist?

BBC orðar það svo að forsetinn hafi virkjað þá sem ekki endilega eru fylgjandi Trump en því harðari á móti andstæðingum hans. Tilefni greiningarinnar er forsetanáðun Dinesh D'Souza sem sér samsæri vinstrimanna við hvert fótmál og er svar hægrimanna við villtum samsæriskenningum á vinstri vængnum.

Obama fráfarandi forseti sameinaði frjálslynda vinstrimenn og pólitískan rétttrúnað. Trump sameinar íhaldssama hægrimenn og hægriöfgar.

Stundum eru flókin mál býsna einföld þegar að er gáð.


Krónan staðfestir yfirburði sína

Með íslensku krónuna að vopni unnum við okkur hratt og örugglega úr bankakreppunni 2008. Írar og Grikkir sátu uppi með evru og lentu í áratug eymdar og volæðis - Grikkir eru enn fastir í volæðinu. Evran stendur fyrir járnbrautarslysi á Ítalíu, segir Nouriel Roubini, en hann sá fyrir kreppuna fyrir áratug.

Ísland, aftur á móti, með krónu og fullveldi skóp skilyrði fyrir samfelldu hagvaxtarskeiði, sem fær framlengingu um 3 ár enn, samkvæmt spám. Ofvöxtur í ferðaþjónustu og fasteignum fær mjúka lendingu næsta vetur. Eðlilegur hagvöxtur upp á tæp 3 prósent, verðbólgu haldið í skefjum og atvinnuleysi sömuleiðis er krónunni og skynsamlegri hagsstjórn að þakka.

Eina sem gæti klúðrað efnahagslegri velmegun krónu og fullveldis er pólitískt klúður annars vegar og hins vegar verðbólgusamningar á vinnumarkaði. 


mbl.is Minni hagvöxtur og meiri verðbólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. júní 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband