Þriðjudagur, 15. maí 2018
Ungabarn gengur ekki til mótmæla
Átta mánaða hvítvoðungur skreppur ekki á ofbeldismótmæli til að tjá hug sinn. Einhver fullorðinn ákveður að ómálga og ósjálfbjarga barn skuli sett í lífshættu og tekur það á vettvang ofbeldisins.
Glæpamaðurinn er sá fullorðni. En íslenskir vinstrimenn þiggja mannfórnir Palestínuaraba til að æsa sig upp í hatrinu á Ísrael.
Samúð með glæpamönnum er ekki hugþekk pólitík.
![]() |
Táragasið drap ungbarn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 15. maí 2018
Kennarar á hærri launum en annað háskólafólk
Grunnskólakennari í Reykjavík er með hærri meðaltekjur en aðrir háskólamenntaðir starfsmenn borgarinnar. Í skýrslu Reykjavíkurborgar kemur fram að meðaldagvinnulaun kennara hjá borginni voru 526.553 kr. í mars 2017 en 482.432 kr. hjá öðrum háskólafélögum.
Á fundi Kennarafélags Reykjavíkur í gær var spurt hvort frambjóðendur til borgarstjórnar væru tilbúnir að hækka kennaralaun um 100 þús. kr. á mánuði.
Undanfarin misseri hafa kennarar ítrekað fellt kjarasamninga, ekki síst vegna róttækra afla sem Ragnar Þór Pétursson formaður KÍ fer fyrir. Róttæklingarnir náðu yfirráðum í Félagi grunnskólakennara og hóta verkföllum í haust.
![]() |
Krossapróf frambjóðenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)