Fimmtudagur, 25. október 2018
Efling auglýsir eftir Gunnari Smára
Efling, sem sósíalistinn Sólveig Anna stýrir, auglýsir eftir drífandi ritsnillingi með reynslu af stjórnun kynningarmála.
Viðskiptablaðið bendir á þessa staðreynd: ,,Athygli vekur að alls engar menntunarkröfur eru gerðar til umsækjenda, sem hlýtur að teljast óvenjulegt."
Formaður Sósíalistaflokks Íslands, Gunnar Smári Egilsson, lítur á sig sem snilling, eins og kunnugt er. Hann lauk barnaskólaprófi og hélt síðan í framhaldsnám á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, háborg mennta og vísinda á Íslandi.
Nærtækara fyrir Sólveigu Önnu hefði verið að sýna örlitla hreinskilni og skrifa: ,,við ætlum að setja Gunnar Smára foringja á launaskrá Eflingar en þurfum að henda út þessari auglýsingu til að þykjast málefnaleg."
Hreinskilni er ekki eðlislægt einkenni sósíalista.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 25. október 2018
Kvennafríið og valdakonur
Valdefling kvenna felur í sér að þær taka í auknum mæli við mannaforráðum í samfélaginu. Sumar konur verða yfirmenn annarra kvenna og hafa bein og óbein áhrif á frama og velgengni annars fólks - karla og kvenna.
Kvennafríið gerir ráð fyrir að konur séu einsleitur hópur sem eigi það sameiginlegt að karlar sitji yfir hlut þeirra.
En svo er ekki. Síðustu tveir af fjórum forsætisráðherrum Íslands eru konur, svo dæmi sé tekið. Og konur eru innbyrðis ólíkar, rétt eins og karlar.
![]() |
Vissu að ákvörðunin yrði umdeild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 25. október 2018
Píratar biðja um fleiri Piur á alþingi
Píratar leggja til að handahófsúrtak ráði vali á tíu einstaklingum er fái að ávarpa alþingi. Fordæmið, sem Píratar vísa til um fólk sem ekki er alþingismenn en fá engu að síður leyfi til að tala á fundi alþingis, er Pia Kjærsgaard.
Píratar mættu ekki þingfundinn með Piu, af því hún hafði rangar skoðanir, en fannst allt í lagi að skála við hana enda kunna Píratar ekki útlensku.
Spurning hvort frekari skilyrði Pírata verði sett á þá tíu sem fái að tala á alþing, t.d. að þeir hafi skoðanir sem Píratar þola og að þeir tali íslensku.
![]() |
Almenningur fái að ávarpa Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 25. október 2018
Menntun skýrir launamun, ekki kynferði
Yngri konur eru með meiri menntun en karlkyns jafnaldrar þeirra. Af því leiðir eru konur á aldrinum 18-27 ára í vinnu hjá hinu opinbera með hærri laun en karlar í sama aldursflokki.
Í meira en tvo áratugi útskrifast fleiri konur en karlar með stúdentspróf, sem er undirbúningur fyrir háskólanám. Í nær öllum deildum háskóla eru konur fleiri en karlar.
Fólk hefur frjálst val um hvaða nám og störf það tekur sér fyrir hendur. Kynbundinn munur kemur fram í þessu vali. Þannig eru konur 80 prósent kennara en innan við 1% flugvirkja.
Það örlar á þeirri hugsun að ,,kvennastéttir" fái lægri laun en dæmigerðar ,,karlastéttir". En starfsgreinar eru mannaðar eftir framboði á starfsfólki. Fyrir tveim kynslóðum var kennarastéttin býsna karllæg.
Ólíkt val karla og kvenna á námi og störfum sýnir að það er munur á milli kynjanna. Sá munur er ekki föst stærð heldur tekur þróast hann í menningunni.
![]() |
Rangar ályktanir um launamun kynja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)