Konur sýna Jóni Steinari undirgefni

Konur láta aðdáun sína á körlum með ýmsum hætti. Ein aðferð er formælingar, gjarnan viðhafðar í lokuðu rými kynsystra sem eru líkt þenkjandi. Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður á sér stækan hóp aðdáenda í röðum kvenna sem dunda sér við að formæla honum af ástríðu.

Þegar Jón Steinar lætur svo lítið að hringja í aðdáanda og inna konuna nánar eftir hverju sætir þessi undirgefni rýkur hún af stað og montar sig af áhuga goðsins.

Vinkonurnar ákveða að skjóta á sérstakan fund til að hylla þá heppnu sem fékk símtalið.

Sumar konurnar sem dagdreymir um Jón Steinar krefjast jafnframt valdeflingar kvenna - eru herskáir femínistar. Valdefld undirgefni kallast þýlyndi.

Aðdáun femínista á feðraveldum, til dæmis því múslímska, verður fullkomlega skiljanleg í ljósi undirgefninnar sem Jón Steinar nýtur.


mbl.is Níða Jón Steinar á lokuðu vefsvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkó hótar kreppu og fólk hættir innkaupum

Verkalýðshreyfingin er allt árið búin að tala upp kreppu í hugum landsmanna. Um næstu áramóti mun efnahagskerfið lamast, segja forkólfar launþegahreyfingarinnar.

Herskár tónn verkó hvetur almenning til að halda að sér höndum í innkaupum, einkum á dýrum vörum eins og bílum. Áhrifin á gjaldeyrismarkaðinn, þar sem krónan fellur vegna hótana um kreppu, auka enn á fælingarmáttinn.

Heimatilbúin kreppa verkalýðshreyfingarinnar eykur ekki líkurnar á hagfelldum samningum fyrir launþega. Í kreppu versnar samningsstaða þeirra sem selja vinnuafl sitt. Þökk sé verkó.


mbl.is Hrun í bílasölu eftir að krónan gaf eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. október 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband