Miðvikudagur, 13. apríl 2016
Stjórnarandstaðan lamar störf alþingis
Stjórnarandstaðan stundar málþóf til að lama störf þjóðþingsins. Rétta svarið við málþófinu er að leyfa misnotkun stjórnarandstöðunnar í nokkra daga eða vikur, ef það þarf til.
Í maí verður ríkisstjórnin búin að leggja fram þau frumvörp sem talið er brýnt að verði samþykkt áður en gengið er til kosninga í haust.
Ef stjórnarandstaðan heldur áfram málþófinu mun það koma henni í koll. Stjórnarandstaðan verður komin í það hlutverk að seinka kosningum sem þó er höfuðkrafan.
Málþóf á alþingi gerir það eitt að auglýsa málefnafátækt stjórnarandstöðunnar.
![]() |
Vildu gera hlé á þingfundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 13. apríl 2016
Pólitískt heitt sumar: tvennar kosningar á 4 mánuðum
Við kjósum forseta í sumar og þingkosningar verða varla seinna en í október. Sumarið er að jafnaði tíminn til að íhuga í rólegheitum veturinn og skipuleggja þann næsta.
Sumarið 2016 verður óvenjulegt. Umrótið sem fylgir forsetakosningum er ekki sjatnað þegar undirbúningur undir þingkosningar kemst á fulla ferð hjá stjórnmálaflokkunum.
Undiraldan í samfélaginu vegna tvennra kosninga á stuttum tíma heldur lifandi umræðunni sem annars leggst í dvala sumarlangt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 13. apríl 2016
Fitch varar við Pírötum á Íslandi
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings segir aukna óvissu í efnahagsmálum á Íslandi sökum þess að Píratar mælast með stóraukið fylgi í könnunum.
Píratar eru ekki með neina reynslu af stjórnun, þeir eru ekki með neina heildstæða stefnu í efnahagsmálum og eru í grunninn mótmælahreyfing sem finnst að lýðræðið eigi heima hjá virkum i athugasemdum á Austurvelli.
Píratar eru núna þriggja manna þingflokkur. Þeir urðu að ráða til sín sálfræðing vegna þess að sundurlyndi einkennir samstarfið.
Ríkisstjórn Pírata yrði uppskrift að óstöðugleika í stjórnarfari og óreiðu í ríkisfjármálum.
![]() |
Aukin óvissa segir Fitch Ratings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |