Táradalur fjölmenningar og síđasti mađurinn

Endalok sögunnar er bók sem kom út fyrir aldarfjórđungi og spáđi sigri frjálslyndrar heimssýnar. Bókin kom út í lok kalda stríđsins sem sýndi fram á gjaldţrot kommúnisma.

Fjölmenning er birtingarmynd frjálslyndra stjórnmála síđustu áratugi. Í húsi fjölmenningar áttu femínistar og múslímar íbúđ hliđ viđ hliđ. Enn trúa sumir á fjölmenningu jafnvel ţótt múslíminn sé löngu búinn ađ kveikja í íbúđ femínistanna, gott ef ekki afhausa íbúana í leiđinni.

Siđvitund frjálslyndra fjölmenningarsinna er mannhverf. Undirtitill bókarinnar Endalok sögunnar er ,,síđasti mađurinn". Mannmiđjukenningunni yfirsást eitt atriđi sem trúuđum - hvort heldur kristnum, gyđingum eđa múslíum - er alla tíđ fullljóst: mađurinn lifir ekki á brauđi einu saman. Trúarsiđferđi byggt á manneskjunni einni saman er hús reist á sandi.

Mađurinn er ţrátt fyrir allt ađeins kjötklumpur og í ţokkabót fjarska ódýr í framleiđslu. Ađeins ţeir međ alvarlegt heilkenni vantrúar láta sér detta í hug ađ setja manninn á stall og tilbiđja kjötklump.

Fjölmenningin er orđin ađ táradal vegna útvötnunar á siđagildum sem héldu saman menningarsamfélögum. Útvötnuđu gildin sóttu réttlćtingu í ćđri hugmyndakerfi, s.s. kommúnisma og kristni. Á árinu sem er líđa mátti sjá viđspyrnu gegn fjölmenningunni. Nćstsíđasti mađurinn er ekki búinn ađ segja sitt síđasta orđ. 


mbl.is Sönn fjölmenning í jólaguđspjallinu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Síđasta símtal kalda stríđsins - 25 ára afmćli orustunnar um Evrópu

Sovétríkin liđuđust í sundur fyrir 25 árum. Tveim klukkustundum áđur en Mikhail Gorbatsjov, síđasti leiđtogi kommúnistaríkisins, sagđi af sér hringdi hann í George W. Bush Bandaríkjaforseta. Vinátta forsetanna tveggja er rauđur ţráđur í gegnum símtaliđ.

Eftir fall Sovétríkjanna var taliđ ađ sambúđ Rússlands og Bandaríkjanna gćti batnađ. En ţađ fór á annan veg. Bandaríkin, í samstarfi viđ Evrópusambandiđ og Nató, ţrengdu ađ öryggishagsmunum Rússlands og settu upp herstöđvar viđ vesturlandamćri Rússa.

Mótmćli Rússa voru ađ engu höfđ. Ţegar Úkraína stefndi í fađm Bandaríkjanna gripu Rússar inn í atburđarásina, innlimuđu Krímskaga og studdu uppreisnarhópa í austurhéruđum Úkraínu.

Rússar litu svo á ađ sívaxandi veldi Bandaríkjanna, ESB og Nató myndi leiđa til einangrunar Rússlands og hnignunar. Höfundur ađ nafni Alexander Dugin greindi stöđu mála ţannig Evrópa yrđi vígvöllurinn á milli Bandaríkjanna og Rússa. Innan Evrópusambandsins er sannfćring um ađ Rússar styđji stjórnmálaöfl sem vilja endalok ESB einmitt út frá ţessari forsendu. Bók Dungin, Fjórđa pólitíska kenningin, á eftir kommúnisma, kapítalisma og fasisma, er sögđ leiđarvísir ađ Evrasíuríki Rússlands og Evrópu er stćđi andspćnis Bandaríkjunum.

Sigri Donald Trump í Bandaríkjunum er fagnađ í Moskvu. Á heimskorti rússneskra ráđamanna er Evrópa enn vígvöllurinn og Trump fćrir álfuna nćr Rússlandi. Sannfćrđir ESB-sinnar, eins og Joschka Fischer, fyrrum utanríkisráđherra Ţýskalands, eru sama sinnis og tala um vestrćn endalok.

Í ţessu ljósi ber ađ skilja áhyggjuleysi Rússa af tilkynningu Donald Trump um ađ stórauka kjarnorkuvígbúnađ Bandaríkjanna. Kjarnorkuvopn styrkja ekki stöđu Bandaríkjanna í Evrópu heldur veikja. Trump ćtlar sér samhliđa ađ draga úr stuđningi viđ Nató sem er helsta verkfćri vestrćnna ríkja í útţenslunni til austurs. Vinstrimenn í álfunni eru međ böggum hildar og spyrja hvađ bíđi Evrópu í bandalagi Pútín og Trump.


mbl.is Ađeins Rússar trúđu á sigur Trumps
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 25. desember 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband