Þriðjudagur, 10. mars 2015
2% hagvöxtur og engar öfgatilraunir
Við brenndum okkur á örum hagvexti fyrir hrun. Of lítill hagvöxtur veldur kreppu og atvinnuleysi. Hagvöxtur mjög í nágrenni við 2 prósent er hæfilegur.
Verkefni næstu missera og ára er að tryggja að pólitískan stöðugleika í landinu til að ekki verði gerðar öfgatilraunir í efnahagspólitíkinni, hvort heldur til hægri eða vinstri.
Sitjandi ríkisstjórn er besti pólitíski kosturinn nú um stundir.
![]() |
Hagvöxturinn 1,9% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 10. mars 2015
Grikkir hóta ESB með Ríki íslam
Varnarmálaráðherra Grikklands hótar að hleypa flóttafólki frá Miðausturlöndum til Evrópusambandsríkja, þar á meðal hryðjuverkamönnum úr Ríki íslam, ef ESB lætur Grikki ekki fá aukna fjárhagsaðstoð.
Telegraph segir frá þessari hótun sem kemur í kjölfar stigvaxandi deilna nýmarxistastjórnarinnar í Aþenu og Brussel.
Evrusamstarfið nærir ekki beinlínis bræðraþelið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 10. mars 2015
Árni bæjó: einkaframtakið á spena bæjarsjóðs
Reykjanesbær er dæmi um ruglrekstur þar sem vinasósíalismi var í öndvegi og skóp örfáum mönnum auð á kostnað almennings. Árni Sigfússon bæjarstjóri er höfuðpaurinn í gjaldþrotaferli bæjarfélagsins.
Árni lýsir ábyrgð sinni með þessum orðum:
Ég held að ég beri ábyrgð á því að við erum búin að byggja gott og öflugt samfélag, segir Árni aðspurður hvort hann beri ekki nokkra ábyrgð á stöðunni, sem fyrrverandi bæjarstjóri. Við erum búin að vera að byggja hér atvinnulífið, við erum búin að vera að standa okkur vel í menntun og ég skal bera ábyrgð á því. Jafnframt hefur ekki gengið að ná upp ýmsum verkefnum, sérstaklega í atvinnumálum. Það er mikill kostnaður og það er það sem við erum að glíma við. Svo ég skal alveg bera ábyrgð á þessu öllu.
Hvergi vottar fyrir hjá Árna viðurkenning á því að hann og félagar hans stefndu fjárhagslegri afkomu bæjarfélags í voða með skeytingarlausum ákvörðunum í þágu hinna fáu á kostnað fjöldans.
Árni á að heita flokksmaður í stjórnmálaflokki sem treystir á ábyrgð einstaklingsins. En hann var sem bæjarstjóri - ekki einstaklingur - að ,,byggja hér atvinnulífið." Og notaði til þess fjármuni bæjarfélagsins sem núna er gjaldþrota.
Svei þér, Árni Sigfússon.
![]() |
Ég skal bera ábyrgð á þessu öllu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)