Fimmtudagur, 24. desember 2015
Línurit um evruna sem söguleg mistök
Uppsláttarfrétt Die Welt í morgun er ađ Finnar telji evruna söguleg mistök. Međ fréttinni er sláandi línurit sem sýnir ţrjár kreppur í finnskri efnahagssögu.
Međ sjálfstćđum gjaldmiđli unnu Finnar sig hratt og vel úr tveim kreppum. Ţriđja kreppan, sem nú stendur yfir, er til muna verri en hin tvćr - enda Finnar bundnir í báđa skó međ evru sem gjaldmiđil.
Finnar horfa öfundaraugum til Svía. Efnahagskerfi Svía hefur frá kreppuárin 2008 vaxiđ um átta prósent, ţökk sé sjálfstćđum gjaldmiđli. Á sama tíma hefur orđiđ sex prósent samdráttur í efnahagskerfi Finna.
Paul Krugman nóbelsverđlaunahafi í hagfrćđi talar enga tćpitungu: Finnar áttu aldrei ađ taka upp evru. Ţví miđur fyrir ţá er hćgara sagt en gert ađ hverfa úr evru-samstarfinu.
![]() |
Hefđu aldrei átt ađ taka upp evruna |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)