Mánudagur, 21. júlí 2014
Þrír fangar við Gettysburg
Í þessum mánuði fyrir hálfri annarri öld og árinu betur var háð orusta við Gettysburg í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Orustan var liður í uppgjöri landshlutanna, norður og suður, um það hvort Bandaríkin skyldu ein og óskipt eða að einstök ríki mættu segja sig úr sambandinu.
Um fimmtíu þúsund ungir menn dóu, særðust, týndust eða voru teknir til fanga í þriggja daga vopnaskaki. Hálfu ári síðar flutti forseti Bandaríkjanna, Lincoln, 272-orða ávarp á vígvellinum er þykir með þeim merkari á enskri tungu.
Suðurríkjamenn fóru halloka í Gettysburg. Ljósmynd af þrem suðurríkjaföngum eftir orustuna er sérstök fyrir þær sakir að hún sýnir ekki bugaða menn heldur stríðsglaða spjátrunga.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 21. júlí 2014
Lög Margrétar Pálu - ólög okkar
Margrét Pála byrjaði Hjallastefnuna fyrir áratugum á leikskólastigi. Með elju, hugviti og snjallri markaðssetningu er Margrét Pála búin að koma ár sinn svo vel fyrir borð að hún fær sérstakt lagafrumvarp samið fyrir sig í menntamálaráðuneytinu til að auðvelda stofnun fleiri Hjallastefnuskóla, sem hún rekur en almenningur borgar.
Margrét Pála er eflaust vel að nýjum lögum komin. Hvergi er á hinn bóginn gert ráð fyrir að Hjallastefnan ein og sér verði valkostur við ríkjandi rekstur sveitarfélaga á grunnskólum. Hætt er við aðrir vilji í kjölfarið komast í viðskipti við sveitarfélögin að reka skóla.
Skóli er bæði rekstur og menntun. Ýmsir s.s. trúarvinglar, græðgisgubbar og sérvitringar munu sjá sér leik á borði og bjóða sveitarfélögum að yfirtaka reksturinn. Stjórnir sveitarfélaga eru misjafnlega mannaðar og einhverjar þeirra munt taka skólatilboði sem verður til bölvunar.
Við rekum grunnskólakerfi sem virkar. Lög Margrétar Pálu munu bora gat á þetta kerfi en bæta sáralitu við skólaþróun. Allar líkur eru á að viðbótin verði dýrari, einkarekstur þarf peningagróða til að réttlæta sig. Eftirlit verður kostnaðarsamara enda mun almenningur gera kröfu um að ríkið verði með nefið ofan í koppi einkarekstursins sem fær skattfé til að skóla börn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 21. júlí 2014
Utanríkisráðherra Breta: yfirgefum ESB
Ef Evrópusambandið verður ekki stokkað upp eiga Bretar að yfirgefa sambandið, segir nýr utanríkisráðherra Bretlands, Philip Hammond. Hann segir nauðsynlegt að fá tilbaka fullveldi þjóða og að Evrópusambandið eigi aðeins að fara með þau mál sem eru þjóðríkjum ofviða.
Hammond talar fyrir gerbreyttu Evrópusambandi, nánast fríverslunarbandalagi, á meðan ráðandi viðhorf í Brussel er að stóraukinn samruna þurfi til að festa ESB í sessi og treysta evru-samstarfið.
Hammond, á hinn bóginn, vill nýtt fyrirkomulag innan Evrópusambandið sem tekur tillit til þeirra aðildarríkja, þau eru tíu, sem ekki eru í evru-samstarfinu. En það er óvart opinber stefna ESB að allar aðildarþjóðir taki upp evru og fórni þjóðargjaldmiðli.
Með öðrum orðum: nýr utanríkisráðherra Bretlands segir á opinberum vettvangi að Bretar séu á leiðinni út úr Evrópusambandinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)