Miðvikudagur, 4. ágúst 2010
Samfylkingarliðið fellur fyrir eigin spuna
Samfylkingarliðið sem stendur að umsókn Íslands að Evrópusambandinu er svo magnþrota og ráðlaust að þegar formaður LÍÚ segir ekki ,,raunhæft" að draga umsóknina tilbaka telja aðildarsinnar að straumhvörf séu orðin í umræðunni. Lýsnar detta af höfði Egils Helga og hjárænurnar kætast.
Samfylkingarfólk telur að andstaðan við aðild Íslands að Evrópusambandinu spretti af hagsmunum útgerðarmanna. Spunalið flokksins hefur haldið þessu fram í áranna rás og dropinn holar steininn.
Andstaðan við aðild Íslands byggir á sannfæringu um að fullveldinu sé best borgið í höndum okkar sjálfra. Hagsmunir einstakra atvinnugreina eru ekki afgerandi fyrir andstöðuna við aðild Íslands.
Umsóknin um aðild Íslands er alfarið á ábyrgð Samfylkingar sem fékk rúm 29 prósent við síðustu þingkosningar. Eftir samþykkt umsóknarinnar í Brussel hefst aðlögunarferli að Evrópusambandinu sem er í hæsta máta ólýðræðislegt þar sem stjórnmálaflokkur með minna en þriðjungsfylgi ræður för.
Fyrir alþingi liggur tillaga til þingsályktunar um að draga umsóknina tilbaka. Fulltrúar allra flokka nema Samfylkingar eru flytjendur tillögunnar. Sjálfstæðisflokkurinn ályktaði til stuðnings tillögunni á landsfundi sínum í sumar og í haust um Vg gera það sama.
Afstaða LÍÚ er aukaatriði í þessu samhengi.
Samfylkingarumsóknina um aðild Íslands að Evrópusambandinu á að draga tilbaka.
Miðvikudagur, 4. ágúst 2010
Útrás háskólanna og gelding gagnrýninnar
Hugmyndin um háskóla er að stunda gagnrýna hugsun. Hverskyns kröfur um hagnýtingu háskóla svo sem um að mennta embættismenn og sérfræðinga eiga ekki að fá framgang nema það sé tryggt að aukagetan sé í góðu samræmi við kjarna háskólans.
Háskólar eru misjafnlega langt frá upprunalegum tilgangi sínum. Íslenskir háskólar fóru fram úr sér í fáráðlingahætti á tímum útrásar. Ekki aðeins mátti heyra úr munni rektora fíflapælingar um samanburð við Yale, Oxford og MIT heldur seldu þeir samtímis auðmönnum þjónustu sína gagnrýnislaust.
Menntamálaráðherra gerir rétt að veita fjármunum í þarft verkefni og Páll Skúlason er réttur maður til að vinna það.
![]() |
Þáttur háskólanna í hruninu rannsakaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. ágúst 2010
Árni Páll gæti bjargað sér með fórn
Ríkisstjórnin er handónýt, það veit Árni Páll. Orðspor hans sem stjórnmálamanns er tætlum, bæði út í samfélaginu vegna kvenfyrirlitningarinnar sem hann sýndi í ráðningu Runólfs, og innan flokks vegna þess hvernig hann stakk téðan Runólf í bakið.
Árni Páll gæti búið sér til nýja vígstöðu með því að fórna ráðherraembættinu og gerast óbreyttur þingmaður.
Þegar Jóhanna hættir fyrir kosningarnar í haust/vetur gæti Árni Páll sótt fram sem maður er tekur afleiðingum gjörða sinna.
![]() |
Samfylkingin á þingflokksfundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 4. ágúst 2010
Landhelgin verður evrópsk við inngöngu
Nái Samfylkingin sínu fram og Ísland verði aðildarríki Evrópusambandsins verður fiskveiðilandhelgi okkar að evrópsku hafsvæði og fiskimiðin sameiginleg auðlind ESB-ríkja. Fiskveiðistefna Evrópusambandsins var ekki sett á laggirnar til að stjórna fiskveiðum heldur skapa meginlandsþjóðum Evrópu samningsstöðu gangvart fiskveiðiþjóðunum Bretlandi, Írlandi, Danmörku og Noregi sem sóttu um inngöngu í sambandið 1970.
Noregur hafnaði í tvígang inngöngu og fiskveiðistefnan var veigamikil ástæða í bæði skiptin.
Breskir sjómenn hafa mátt horfa upp á Spánverja ryksuga miðin sín eftir inngöngu Spánar á miðjum níunda áratugnum.
Hér er stutt ágrip af hörmungarsögunni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. ágúst 2010
OR er sukkveita Íslands
Orkuveita Reykjavíkur er miðstöð spillingar þar sem vel kunnir auðrónar eins Alfreð Þorsteinsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Björn Ingi Hrafnsson hafa lagt línur um braska með almannaeigur. Meðhlauparar í starfsmannahópi lærðu inn á spillinguna; forstjóri Magma á Íslandi var áður aðstoðarforstjóri OR.
RÚV segir frá því að OR neiti að láta af hendi gögn um samskipti við Magma. Spillingarmiðstöðin vill vitanlega ekki greina frá myrkraverkum sínum og skal engan undra.
Í stjórn OR sitja fulltrúar almennings. Þeir standa ekki undir nafni ef það verður látið viðgangast að OR neiti upplýsingum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)