Sunnudagur, 4. júlí 2010
Hausatalning Egils
Egill Helgason telur nákvæmlega þá fá hausa sem hætta í Sjálfstæðisflokknum vegna þess að landsfundur flokksins ákvað að hann skyldi rísa undir nafni og álykta um Evrópumál í samræmi við vilja afgerandi meirihlutaflokksmanna. Egill finnur tvo feyskna og gerir númer úr málinu.
Málstaður aðildarsinna er orðinn heldur veikur þegar trompin þeirra eru aflóga flokkshross.
Kannski kætist Egill þegar Þorgerður Katrín kúlulánadrottning og aðildarsinni boðar endurkomu sína í þinglið sjálfstæðismanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 4. júlí 2010
Sumarfrí, fótbolti og endurskoðun
Sumarið er tími hvíldar og kæruleysis þjóðar sem þarf ekki lengur að birgja sig upp fyrir veturinn. Fyrir aðra er sumarið vertíð. Ferðaþjónustan leggur nótt við dag til að nýta fólk og fjárfestingar í ásvissu þriggja mánaða átaki. Fótboltinn er annars dæmigerður fyrir vellystingar samtímans. Hægt er að fylgjast með heimsviðburðinum á nær hvaða útkjálka sem er.
Eftir sumarfríið verður tekið til við endurskoðunina þar sem frá var horfið í vor.
Fram að úrslitaleik Hollendinga og Þjóðverja er lífið léttúð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)