Útrásarafgangar í boði Samfylkingar

Björk Guðmundsdóttir söngkona fær áheyrn hjá Financial Times vegna andófs gegn kaupum Magma á orkuauðlindum. Björk er kurteis þegar hún segir ríkisstjórnina standa á bakvið söluna. Það er samfylkingararmur ríkisstjórnarinnar sem ber ábyrgð á verknaðinum.

Samfylkingin var ákafasti talsmaður útrásarinnar þegar flestum öðrum var ljóst að auðrónarnir og meðhlauparar þeirra væru skaðræðisgripir.

Samfylkingin spólar í sömu útrásarhjólförum og mun gera á meðan flokkurinn hefur tögl og haldir í ríkisstjórninni.


mbl.is Björk: „Afgangar af spillingunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óstöðugleikinn er tækifæri

Eftir hrun lagðist þjóðfélagið ekki í dróma. Þjóðin dreif sig í að aðlagast breyttum aðstæðum og hafði nægt þrek til að leiðrétta ranga stefnu stjórnvalda t.d. í Icesave-málinu. Fólk taldi marga möguleika í stöðunni þótt ýmsir gerðu ekki annað en að mála skrattann á vegginn. Það var einmitt vegna óstöðugleikans sem almenningur lagði ekki árar í bát.

Eftir dóm Hæstaréttar í gengislánum skapaðist ný óvissa. Fjármálastofnanir og erlenda kröfuhafa sáu kröfur sínar komast í uppnám en skuldarar möguleika á að komast úr feninu.

Annað heiti á óstöðugleika er tækifæri. 


mbl.is Dómar Hæstaréttar ógna stöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Léttsveitin gegn verðhjöðnunarbola

Álagspróf evrópsku bankanna verður birt í lok viku. Eftirvæntingin er nokkur þar sem fastlega er gert ráð fyrir að töluverður fjöldi banka standist ekki prófið. Evrópski Seðlabankinn í samráði við aðildarríki ESB verður með viðbragðsáætlun til að endurfjármagna banka sem ekki standast prófið.

Efasemdir eru um að álagsprófið mæli raunverulega stöðu einstakra banka og evrukerfisins í heild. Í grunninn eru tvær nálganir uppi. Annars vegar að summa bankakerfisins sé heildarfjöldi banka og standist þeir prófið er óhætt að vera bjartsýnn með framhaldið. Hins vegar að kerfislægur vandi í evruhagkerfinu sé þess eðlis að álagspróf á banka eina og sér mæli ekki viðamikla veikleika fjölþjóðasamstarfsins sem standur að baki evrunni.

Ambrose Evans Pritchard fjármálablaðamaður Telegraph ber saman álagspróf bandarískra banka og evrópskra og bendir á að enginn hafi efast um að alríkisstjórnin í Washington komi ekki bandarísku fylki til bjargar þegar í nauðir rekur. Aftur er alls ekki víst að einstök evruríki fái sambærilegan stuðning. Raunar er það harla ólíklegt samanber að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn var kallaður til Grikklands.

Efnahagspólitík evrusvæðisins er líkt við sögufræga hernaðaraðgerð í Krímstríðinu á 19. öld, Charge of the Light Brigade, Árás léttsveitarinnar, sem var stráfelld í orrustunni um Balaclava.

Eftir hitabylgju síðustu vikna í Evrópu sest hrollur að síðsumars.


Bloggfærslur 19. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband