Þriðjudagur, 22. júní 2010
Enginn vill partý með Össuri
Utanríkisráðherra er í þeirri stöðu að standa á dyrastaf Evrópusambandins og vilja inngöngu. Húsbændurnir í Brussel vilja Össur hins vegar ekki vegna þess að hann er óuppdreginn óreiðumaður og ekki húsum hæfur. Það sem meira er skortir ráðherrann föruneyti frá Íslandi.
Engu að síður vill Össur sitt partý enda búið að lofan honum því að sögn.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir margítrekað af forystu Evrópusambandsins og framkvæmdastjórn þess að engin tenging sé milli Icesave og aðildarviðræðnanna.
Forsætisráðherra Breta sagði á breska þinginu nýverið að Ísland færi ekki inn í Evrópusambandið fyrr en Íslendingar væru búnir að borga kröfu Breta vegna Icesave. Össur veit ósköp vel að hvert og eitt aðildarríkjanna 27 hefur neitunarvald gagnvart nýjum aðildarríkjum.
Enginn vill partý með Össuri Skarphéðinssyni, hvorki hér heima né erlendis.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 22. júní 2010
Unnur Brá varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn heldur landsfund um helgina og brýnt að flokkurinn svari óþreyjufullum kröfum um að hann sé tilbúinn að taka af skarið í þeim málum brýnust eru. Kosið verður til formanns og varaformanns flokksins. Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður flokksins á Suðurlandi hefur sýnt að hún þorir þegar aðrir hika.
Unnur Brá er aðalhöfundur að þingsályktunartillögu um að Ísland dragi tilbaka umsóknina um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan ein og sér gerbreytti umræðunni um Brusselhelför Samfylkingarinnar þar sem hún sýndi fram á hversu einangruð Samfylkingin er með því að þingmenn annarra flokka skráðu sig á tillögu Unnar Brár.
Í umræðum á alþingi er Unnur Brá beinskeytt og gefur sig lítt að loðmullu sem hikandi og hikstandi þingmönnum er tamt.
Unnur Brá er framtíðarleiðtogi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 22. júní 2010
Hæstaréttardómur er eitrað peð stjórnvalda
Dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána er eitrað peð fyrir stjórnvöld. Ef þau ætla að krukka í dóminn, t.d. með því að skella á verðtryggingu, er opnað fyrir dómsmálahrinu og hverskyns kröfur sem allar eiga það sameiginlegt að vera íþyngjandi fyrir skattgreiðendur.
Gengislánasamningar eru með ýmsu móti, sumir munu sjálfkrafa leiða til tiltölulegra lágra vaxta á meðan önnur munu bera stýrivexti Seðlabanka Íslands.
Fjármálafyrirtækin eru með allt á hælunum í þessum máli sem öðru enda biðja þau um ríkisforsjá. Við eigum ekki að veita ríkisábyrgð eftirá. Bílalánafyrirtækin eiga að fara í þrot enda er það til muna ódýrara fyrir skattgreiðendur.
![]() |
Vill verðtryggingu á lánin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)