Föstudagur, 7. maí 2010
Besta útrásarframboðið
Besti flokkurinn er framlag menningarinnar til stjórnmálanna. Jú, rétt til getið, sama menning og var á mála hjá útrásarauðmönnum. Ef við gætum fengið einn til tvo úr Reykjavíkurakademíunni væri útrásarafturgangan fullkomnuð.
Máttur útrásarinnar fólst ekki síst í að hann smó inn í meðvitund sviðsfólks, hvort heldur á Bessastöðum, leikhúsum eða uppistandi. Útrásin var viagra andans; slappir urðu stinnir.
Brilljansinn er almenningur er alveg til í að meðtaka ný töfrabrögð. Stjórnmálaflokkarnir eru í afneitun og hvers vegna ekki að stökkva á brandaravagninn. Með orðum Dylan sem Hendrix gerði ódauðleg
No reason to get excited
The thief he kindly spoke
There are many here among us
Who feel that life is but a joke but uh
But you and I weve been through that
And this is not our fate
So let us not talk falsely now
The hours getting late
![]() |
Besti flokkurinn kynnir lista sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 7. maí 2010
Í eigin lögsögu - en hve lengi?
Karfaveiðin fer vel af stað og útgerðin sækir þann rauða til að skila þjóðarbúinu gjaldeyri. Í Viðskiptablaðinu/Fiskifréttum segir
Auk íslensku skipanna eru um tuttugu erlend skip á karfamiðum að veiða úr torfu sem heldur sig á og í námunda við 200 mílna lögsögumörkin. Flekkurinn teygir sig inn fyrir línuna þannig að Íslendingarnir geta athafnað sig einir og ótruflaðir inni í eigin lögsögu sem auðvitað er óskastaða, að sögn Kristins.
Óskastaðan sem Kristinn Gestsson skipstjóri á Þerney RE segir að við höfum er ekki sjálfsögð. Pólitískt verkefni Samfylkingarinnar er að færa lögsögu yfir landhelginni til Evrópusambandsins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 7. maí 2010
Sést í kviku Samfylkingar
Launauppbót seðlabankastjóra upp á 400 þús. opinberar hræsni Samfylkingarforystunnar. Kemur tvennt til. Fjárhæðina er auðvelt að skilja. Framhaldsskólakennarier til dæmis með um 340 þús. kr. í mánaðarlaun, eða all nokkru lægri en launauppbót seðlabankastjóra. Í annan stað þykist samfylkingarfólk aðhyllast jöfnuð en aðeins í orði kveðnu.
Styrkir Steinunnar Valdísar, gagnaver Björgólfs Thors og Villa Þorst., skjaldborgin um Baugsfjölskylduna og loks launauppbót seðlabankastjóra, sem var handvalinn af forsætisráðherrar, eru allt dæmi um forréttindahugsun.
Á tíu ára sögu Samfylkingarinnar er fjarska lítið að segja af jöfnuði.
![]() |
Formaður bankaráðs krafinn svara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 7. maí 2010
Baugsdekur Jóhönnu Sig. staðfest
Forsætisráðherra tekur fagnandi fréttum af handtöku forstjóra Kaupþings. Í viðtali við Pressuna er haft eftir Jóhönnu Sigurðardóttur
Það er afar mikilvægt fyrir það uppgjör sem nú fer fram að sannleikurinn komi í ljós um það sem raunverulega gerðist í bönkunum í aðdraganda hrunsins og að þeir sem þar báru ábyrgð axli hana.
Á sama tíma og forsætisráðherra vill að gerendur axli ábyrgð veitir banki á forræði ríkisins, Arion, Baugsfjölskyldunni heimild til að stýra fákeppnisfyrirtækinu Högum. Annar banki sem beinlínis er í eigu ríkisins, Landsbankinn, leyfir Baugsfjölskyldunni að stýra gjaldþrota fjölmiðlaveldi, 365-miðlum.
Er ekki tímabært að þú axlir ábyrgð, Jóhanna Sigurðardóttir?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 7. maí 2010
Drengirnir ósnertanlegu
Handtaka Hreiðars Más Kaupþingsstjóra dældar hugmyndina um ósnertanlegu drengina sem voru snjallir í viðskiptum en kannski eilítið óheppnir. Almenningur vissi fyrir löngu hvað klukkan sló; útrásarauðmennirnir eru illa gerðir einstaklingar, lygnir, þjófóttir og hégómlegir.
Á hinn bóginn grefur það undan tiltrú almennings á ríkisvaldinu að einn armur þess, ríkisstjórnin, stundir viðskipti við fugla eins og Björgólf Thor og Jón Ásgeir eins og ekkert hafi í skorist. Með því að umgangast útrásarauðmenn eins og heiðvirða einstaklinga veitir ríkisstjórnin þeim aflát. Annar armur ríkisvaldsins, ákæruvaldið, virtist fara ofurhægt í sakirnar - þangað til í gær. Og almenningi var létt.
Drengirnir ósnertanlegu ætluðu að ljúga því að okkur að þeir hafi aðeins stundað viðskipti en hvorki rænt banka innan frá né sólundað lífeyrissjóðum í þágu fjármálafíflsku. Þangað til í gær gekk drengjunum ágætlega að spinna lygavefinn enda eiga þeir marga hjálparkokka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)