Jóhanna fattar ekki ESB

Jóhanna Sig. heldur að þjóðir semji sig inn í Evrópusambandið. Svo er ekki. Ríki ganga inn í Evrópusambandið og aðlaga sig regluverk þess í aðdraganda inngöngu. Hjá ESB heitir þetta ,,accession process" eða aðlögunarferli.

Hvort sem valkvætt þekkingarleysi eða upprunalegt þjakar Jóhönnu er hún úti að aka þegar hún segir að niðurstöður samningaviðræðna séu forsenda fyrir upplýstri ákvörðun þjóðarinnar gagnvart aðild.

Samfylkingin stendur ein í Evrópuleiðangrinum. Skaðinn sem Ísland verður fyrir vegna aðildarþráhyggju Samfylkingarinnar vex með hverjum deginum.


mbl.is „Ingibjörg Sólrún of svartsýn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur Bjarna snuprar Pálma í Fons

Vilhjálmur Bjarnason talsmaður fjárfesta og liðsmaður í Útvarsliði Garðbæinga í spurningakeppni í Sjónvarpinu neitaði að taka við sigurverðlaununum sem voru ferðaávísun frá Iceland Express.

Pálmi í Fons er aðaleigandi Iceland Express en hann og Jón Ásgeir Baugsstjóri eru í aðalhlutverki innherjaæfinga í Glitnisbanka sem fjallað hefur verið um síðustu daga.

Vilhjálmur Bjarnason sýndi fordæmi þegar hann neitaði að taka við verðlaunum frá Iceland Express.


Guðmóðir ESB-umsóknarinnar vill hætta við

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra segir í viðtali við þýskan blaðamann að umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu sé tímasóun. Ingibjörg Sólrún, miklu frekar en Jóhanna Sigurðardóttir, lagði grunninn að Evrópuáherslum Samfylkingarinnar.

Þegar Ingibjörg Sólrún lýsir yfir uppgjöf aðildarsinna er málatilbúnaðurinn dauður. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra veit það ósköp vel og því neitaði hann Sjónvarpinu um viðtal í dag þegar leitað var eftir viðbrögðum hans. Össur neitar nær aldrei fjölmiðlaviðtali.

Þýski blaðamaðurinn sem tók viðtalið við Ingibjörgu Sólrúnu hefur orðið var við verulegan áhuga á efni þess og snaraði yfir á ensku helstu efnisþáttunum sem lúta að ESB-umsókninni.


Lykillinn að siðblindu Jón Ásgeirs og Pálma

Jón Ásgeir Baugsstjóri og Pálmi í Fons segjast hvorugir hafa hagnast persónulega á æfingum með Glitnisbanka. Tölvupóstar sem fjölmiðlar hafa birt síðustu daga benda eindregið til þess að þeir félagar hafi rænt bankann innan frá.

Til að skilja hvernig menn eins og Jón Ásgeir og Pálmi geta lifað með sjálfum sér og í þokkabót staðið keikir á götum og torgum sakleysið uppmálað verður að horfa til óendanlegrar getu þeirra beggja til sjálfsblekkingar.

Fyrir hrun voru Jón Ásgeir og hlutafélögin hans einn og sami aðilinn. Eins kom fram í Baugsmálum sáu fyrirtæki Jóns Ásgeirs um að borga fyrir hann dagleg neyslu, frá pylsum yfir í síma og úttektir í tískuverslunum. Eftir hrun er Jón Ásgeir sjálfstæður lögaðili með hreina kennitölu en fyrirtækin eru gjaldþrota lögaðilar sem koma prívatmanninum Jóni Ásgeiri ekkert við.

Pálmi í Fons undirstrikar þennan mun á sjálfum sér og fyrirtækjum sem hann átti í stefnu á hendur fréttamanni RÚV.

Í stefnunni segir að Pálmi „þarf ekki að sæta því að vera samsamaður fyrirtæki, sem hann átti hlutafé í og var í forsvari fyrir".

Eins og Viðskiptablaðið greinir frá var annað hljóð í strokk Pálma þegar útrásin stóð sem hæst.

 


Bloggfærslur 9. apríl 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband