Fimmtudagur, 8. apríl 2010
Pólitísk ábyrgð á Jóni Ásgeiri
Fjölmiðlar í gær og dag birta tölvupósta milli Jóns Ágeirs Baugsstjóra og helsta eigenda Glitnisbanka og stjórnenda bankans. Tölvupóstarnir veita innsýn í það hvernig banki er rændur innan frá.
Jón Ásgeir komst upp með að ræna banka innan frá vegna þess að hann hafði sterkt pólitískt bakland í Samfylkingunni. Samfylkingin, með þáverandi formann Össur Skarphéðinsson í fararbroddi, tryggði að fjölmiðlalögin, sem áttu að koma böndum á samþjöppun fjölmiðlavalds undir merkjum Baugs, féllu niður dauð sumarið 2004.
Núverandi þingmenn Samfylkingar, Róbert Marshall og Sigmundur hikk Ernir Rúnarsson, voru á mála hjá Baugi. Björgvin Sigurðsson fyrrum viðskiptaráðherra Samfylkingar var sérstakur vikadrengur Jóns Ásgeirs og var sem slíkur vakinn nóttina sem Seðlabankinn ætlaði að yfirtaka Glitni sem var kominn í þrot eftir að krumlur Jóns Ásgeirs höfðu skrapað botninn.
Samfylkingin ber pólitíska ábyrgð á Jóni Ásgeiri.
Fimmtudagur, 8. apríl 2010
Prinsippmaðurinn Jón Ásgeir
Í tölvupósti sem Jón Ásgeir Baugsstjóri og helsti eigandi Glitnisbanka sendi Lárusi Welding bankastjóra nokkrum mánuðum fyrir gjaldþrot bankans segist hann af prinsippástæðum ekki ábyrgjast nein lán sem hann þó sjálfur tekur.
Jón Ásgeir Jóhannesson til Lárusar Welding 11. maí 2008: "Klára Goldsmith af þessum eina milljarði sem ég átti að fá greitt þarf 250 að fara til að borga yfirdrátt hjá GLB [Glitnis] prinsip mál að vera ekki með persónulegar skuldir í mér. Rest get ég í raun geymt hjá GLB."
Jón Ásgeir kemst upp með að ráðskast með bankastjóra Glitnis, þverbrjóta lög og reglur um ákvarðanir bankastjórnar og fótum troða hagsmuni annarra hluthafa bankans.
Prinsippið sem Jón Ásgeir hefur er að hann sé hafinn yfir lögin og réttarríkið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)