Innviðir græðginnar

Tölvupóstar Jóns Ásgeirs til starfsmanna Glitnis kristalla útrásarsöguna. Litli einstæðingurinn af Nesinu með mikilmennskubrjálæðið hótar að gerast starfandi stjórnarformaður bankans ef undirmenn forstjórans fara ekki að kröfum Jóns Ásgeirs.

Í stefnunni eru birtir tölvupóstar frá Jóni Ásgeiri til Lárusar bankastjóra. Fyrirsögnin á einum pósti er „Þetta eru málin sem ég er að bögga ykkur með, aðallega í tekjuöflun fyrir bankann set þetta skýrt upp the bonus way svo við getum með einföldum hætti klárað málin".
Í skeytinu segir: „Þetta eru málin nenni ekki að bögga ykkur á hverjum degi með þessu enda ætlast ég til að CEO þessara félaga vinni sín mál. Ef við komum þessum málum frá þá er borðið mitt hreint. Annars er kanski best að ég verði starfandi stjórnarformaður Glitnisbanka". Þessa síðustu setningu mætti túlka sem vissa hótun.

Þegar saga útrásarinnar verður skrifuð af yfirvegun er spurning hvernig það verður skýrt að drýldinn gaur eins og Jón Ásgeir náði að beygja undir sig fólk sem virðist heilt á geðsmunum. Líkleg skýring er að Jón Ásgeir sé sýkópatískur lygari. Hversdagslegt fólk gerir ráð fyrir að meðborgarar sínir hafi almennar siðareglur í heiðri um sannsögli og heiðarleika.  Týpur eins og Jón Ásgeir þrífast vegna þess að það er til heiðarlegt fólk. 

Í þessu ljósi er fyrirgreiðsla sem endurreistir bankar veita Jóni Ásgeiri tilræði við þjóðina. Hvorki meira né minna.

 


Saksótt fyrir útrásarglæpi

Hvítflibbaglæpir útrásarauðmanna bitnuðu á saklausu fólki sem ýmist tapaði beint á ruglkeyrslunni í gegnum lífeyrissjóði sína eða óbeint með því að bankaauðmenn gerðu samsæri gegn krónunni. Eftir hrun var siðleysi útrásarmanna staðfest þegar enginn þeirra gekkst við glæpum sínum.

Á útrásarmönnum er að skilja að þeir hafi verið fórnarlömb lélegs eftirlits og ódýrra lána. Í raun hafi þeir aðeins ,,gert það sem allir hinir voru að gera." Baugsmiðlar gera út á þessa spillingarjöfnun siðleysingjanna.

Skilanefnd Glitnis gefur tóninn með skaðabótarmáli gagnvart auðmönnum og meðhlaupurum í Glitni. Aðrar skilanefndir hljóta að koma í kjölfarið.


mbl.is Skaðabótamál gegn Glitnis-mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirferli aðildarsinna

Aðildarsinnar í Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum eiga það sameiginlegt að koma ekki hreint fram. Laumupólitík þeirra er að bíða eftir hentugu tækifæri til að setja ESB-aðild á dagskrá þegar þjóðin er andvaralaus og upptekin við annað, eins og til dæmis að takast á við hrunið.

Samfylkingin hefur frá upphafi tíðkað þessa stjórnlist. Forysta Samfylkingarinnar kom ekki hreint fram við flokksmenn sína þegar Evrópumál voru á dagskrá flokksins. Andstæðingum aðildarumsóknar var skipulega haldið utan við umræðu innan flokksins og málflutningur einhliða eftir því. Flokkurinn samþykkti að efna til póstkosningar um áhuga flokksmanna að sækja um aðild.

Í stað þess að spyrja beint hvort Samfylkingin ætti að beita sér fyrir því að Íslendingar sæktu um aðild að Evrópusambandinu lagði forystan eftirfarandi spurningu fyrir flokksmenn:

Á það að vera stefna Samfylkingarinnar að Íslendingar skilgreini samningsmarkmið sín, fari fram á viðræður um aðild að Evrópusambandinu og að hugsanlegur samningur verði síðan lagður fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar?

 Þessi undarlega orðaða spurning var lögð fyrir félagsmenn í póstkosningum haustið 2002. Tillögum um ótvíræðari spurningu um hvort Íslandi ætti að sækja um ESB-aðild var hafnað. Um þriðjungur flokksmanna hafði fyrir því að svara loðmulluspurningunni og meirihluti þeirra sagði já.

Sami hátturinn er hjá fámennum hópi sjálfstæðismanna sem eru aðildarsinnar. Þegar kjósa átti um hvort Ísland ætti að sækja um aðild að ESB eða ekki á landsfundi komu aðildarsinnar grátandi í pontu og báðust undan kosningu. Illu heilli var þeim gefin grið.

Kafbátahernaðurinn sem aðildarsinnar stunda í skjóli aðildarsinnaðs varaformanns Sjálfstæðisflokksins og linku formannsins dregur úr tiltrú fólks á móðurflokki íslenskra stjórnmála.

 


Bloggfærslur 7. apríl 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband